... eina leiðin til að lækna hómósexjúalisma væri að baða sig í ilmolíum og fórna einni geit á miðnætti hvers miðvikudags. Arnaldur fór nú og keypti slatta af geitum en árangurinn...
lét nú á sér standa og eftir 5 mánuði af vikulegum geitafórnum og olíubaðsulli varð Arnaldur orðinn svo háður geitadrápi að hann varð að fara á geitamyrðis-anonymous eða GA- fundi alltaf á hverjum
vikudegi sem byrjaði á f. Þar voru jafnan nokkrir menn og fáeinar konur sem töldu geitafórnir vera lækningu á hinum ýmsu kvillum, þar á meðal baggalútsmeðvirkni og ...
kaupæði, en það undarlega var að fólkið s em sótti þessa fundi hafði allt saman verið í sama bekk í sama skóla árið 1967 til
1967 1/2, þegar skólinn hvarf á dularfullan hátt ofan í gapandi holu í jörðinni eina nóttina. Töldu flestir að orsökin væri
gríðarleg fjölgun ánamaðka og þess væri ekki langt að bíða að öll Reykjavíkurborg hyrfi í svarthol ánamaðkanna sem höfðu á einhvern hátt kynblandast norskum kakkalökkum. Á neyðarfundi Almannavarna ríkti algjör ringulreið þar til...
formaður Félags Eldri Borgara steig í pontu og tilkynnti að varðmenn yrðu skipaðir úr röðum ellilífeyrisþega til að fylgjast með þróun mála, enda hefðu þeir ekkert betra að gera en
... að fylgjast með ánamöðkum stunda kynlíf með norskum kakkalökkum. Eftir þessa meðferð var Arnaldur þó aftur kominn á byrjunarreit. Hann var ennþá organdi hómósexjúal og framferði hans eftir því. Þá datt honum snilldarráð í hug: Hann...
ákvað að skella sér niður í gapandi svartholið þar sem skólinn hafði staðið og nýta sér þessa kynferðislegu brenglun maðkanna og kakkalakkanna til frelsunnar undan oki sódómiskunnar.
Kæru vinir! Ég heiti Arnaldur og ég er.....
alveg svaaaakaaaalega hýr! Ég er svo hýr að ég læt Pál Óskar lita út eins og Chuck Norris." Kakkamaðkarnir horfðu á hann í forundran, en eftir langa og óþægilega þögn...
steig konungur kakkamaðkanna fram og sagði. Hvern andskotann er þú að derra þig hommatittur?
Veist þú ekki að
ég er heimsins mesta drottning!? Sjáðu bara pallíetturnar! Arnaldur hrökklaðist afturábak og stamaði út úr sér...
Gott er einn í görn að fá.
Við þessi orð trylltist kakkamaðkakóngurinn og réðist á óblandaðan ánamaðk og beit hann í tvennt.
Annar helmingur maðksins reisti sig upp og.....
söng titillagið úr Cheers, enda vel í glasi. Svona miðað við hálfan ánamaðk. Arnaldur greip tækifærið og..
fékk sér vel í nös. Síðan hóf hann upp raust sína og yfirgnæfði söng þess hálfa sem var reyndar nær því að vera fullur en hálfur með því að syngja bíbí og blaka.
Nú var marsvíninu nóg boðið enda hafði hann fylgst vel með Arnaldi í öllum þessum hremmingum og vissi ekki alveg hvernig hann ætti að bregðast við öllu þessu fylleríi á honum Arnaldi sem var orðinn geitamyrðandi hommi í holu með stökkbreyttum kakkamöðkum á fylleríi. Marsvinið ákvað að núna skyldi hann svala græðgi sinni því honum þóttu skordýrin girnileg og stökk ofan í holuna með mighty mouse góli og hrópaði svo
"Here I come to eat your brain!" enda var marsvínið uppvakningur sem vissi fátt betra til átu en ferska heila, nema þá kannske
börn. En í þessari holu voru engin börn þannig að heilar kakkamaðkanna freistuðu hans mikið og hann réðist til atlögu og byrkaði að éta maðkalakkana með bestu lyst. Arnaldur átti fótum sínum fjör að launa þegar hann reyndi að fara uppúr holunni . Hann sá að marsvíninu gekk