— GESTAPÓ —
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Golíat 29/10/03 09:45

Hvurslags meðferð sæta hirðfífl Baggalúts af hálfu ritstjórnarinnar? Sumir eru rakaðir af þeim forspurðum - (það er reyndar gamalt hrekkjabragð að breyta útliti manna þegar þeir sofa áfengisdauða, raka af þeim aðra augabrúnina eða lita hár þeirra fjólublátt, en það er meira svona menntaskólahúmor). Aðrir verða fyrir því að þær persónulegu upplýsingar sem þeir hafa gefið um sig eru rangtúlkaðar og teygðar - helstu smitsjúkdómar orðnir að LÍFSSPEKI. Var lífsspeki Jónasar Hallgrímssonar þá sífilis og Hallgríms Péturssonar limafallssýki? Spyr sá er ekki veit.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Enter 29/10/03 09:53

Úbs. Þarna hefur slæðst inn stafsetningarvilla.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 29/10/03 09:57

Golíat mælti:

Hvurslags meðferð sæta hirðfífl Baggalúts af hálfu ritstjórnarinnar? Sumir eru rakaðir af þeim forspurðum - (það er reyndar gamalt hrekkjabragð að breyta útliti manna þegar þeir sofa áfengisdauða, raka af þeim aðra augabrúnina eða lita hár þeirra fjólublátt, en það er meira svona menntaskólahúmor). Aðrir verða fyrir því að þær persónulegu upplýsingar sem þeir hafa gefið um sig eru rangtúlkaðar og teygðar - helstu smitsjúkdómar orðnir að LÍFSSPEKI. Var lífsspeki Jónasar Hallgrímssonar þá sífilis og Hallgríms Péturssonar limafallssýki? Spyr sá er ekki veit.

Stundum þarf að rassskella börn til að þau hagi sig vel.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Frelsishetjan 29/10/03 10:52

Mér fannst þetta snilldarlega gert hjá Enter. Og sjaldan hlegið jafn mikið.

Drottnari allra vídda. Guð alls svalls. • Eigandi sálar hins Mikla Hákons. • Eigandi Nærbuxna. • Sjálfkjörinn formaður Ritstjórnar.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Tony Clifton 29/10/03 10:55

Ekkert barn hefur verið rassskellt jafn oft í framan og þú Skabbi minn, í raun frekar skiljanleg misgrip þegar maður veltir því fyrir sér, en hefur augljóslega ekki haft tilætluð áhrif!
Og hvað ert þú að tjá þig F, að lofa ENTER eins og einhver sjálstæðis grúppía, settu þig í spor ENTERS, heldurðu að hann vilji vera lofaður af yfirlýstum svínriðli?

Bíttí punginn á þér!!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 29/10/03 11:01

Tony Clifton mælti:

Ekkert barn hefur verið rassskellt jafn oft í framan og þú Skabbi minn, í raun frekar skiljanleg misgrip þegar maður veltir því fyrir sér, en hefur augljóslega ekki haft tilætluð áhrif!

Þakka þér fyrir, þetta er hrós í mínum eyrum, sérstaklega þegar það kemur frá þér...

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 29/10/03 11:41

Það hvarflar að oss að Tony kunni að vera maðurinn sem FÁUÁUÚG, KALÍS og Geimbrasksstofnunina vantar í starf áróðursmeistara. Í því felst að ergja óvini vora með því að ata þá aur. Launin yrðu eigi mjög lág enda hafa umræddir aðilar þegar sankað að sjer yfir 30 milljörðum dollara auk ýmiskonar hátæknibúnaðar.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Golíat 29/10/03 17:04

Gæti ekki vantað strætisvagnabílstjóra í Jerúsalem

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
dordingull 29/10/03 18:02

Golíat mælti:

Gæti ekki vantað strætisvagnabílstjóra í Jerúsalem

Þetta er ágætis hugmynd sem kæmi í veg fyrir að vagnarnir yrðu sprengdir því það þyrði enginn með hvort eð væri.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Narfi 2/11/03 19:20

Hmmmmm...

» Gestapó   » Umvandanir, ábendingar, tilmæli   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: