Jæja, nú er ég í vinnunni og er búinn að fá mér smá bjór. Nú skal haft fjör og stuð!
xT
Ég er einmitt ekki í vinnunni og er ekki búin að fá mér smá bjór!
En skál bara samt og góða skemmtun, hvað sem gerist síðar í kvöld. xTxT
Heyrðu ég er reyndar ekki í vinnunni, en nóg er til af áfenginu á þessum bæ!
Ljómar upp og sækir sér bjór
Ég er kominn heim og er EKKI búinn að fá mér BLÚT!
Hendir helvítis nagdýrinu út og traðkar á því
Dæsir mæðulega og vildi að hann ætti aur fyrir áfengi...
hvah, geturðu ekki bruggað nokkra lítra af landa einsog heiðvirður íslendingur.
Nei. ekkert fyllerí fyrir mig. neinei. það er ekkert svoleiðis núna.
Það var mergjað sukk hjá mér til kl 10 í morgun. Þá náði ég sex tíma svefni. Það fyrsta sem ég gerði þegar ég vaknaði var að fá mér hálfa teskeið af lyftidufti, fimm diazepam, eina rohypnol, tvær ritalin og bjór Nú er ég kominn í rétta gírinn. Skál!
Þannig að miðað við venjulegan mann ertu bara nokkuð edrú. Örvandi og róandi til skiptis.
Total crossover fyrir mig og væri sennilega dauður.
Fyllibyttur hérna alltaf hreint. Hnussar
Fyllibyttur?
Hvar hefur þú verið Þarfi minn?
Við erum ekki einu sinni búin að tæma tunnu á manninn!
Hvur árinn! Meiri skrambans letin. Ég verð að hjálpa ykkur með þetta.
Hellir 12 mismunandi áfengistegundum saman í risastórt glas og kneyfar í gríð og erg
Vjer erum nú ekki einu sinni búnir að tæma eitt eða neitt enda nýkomnir Leitar að drykkjum en sjer bara tómar tunnur,
Hvur árinn! Meiri skrambans letin. Ég verð að hjálpa ykkur með þetta.
Hellir 12 mismunandi áfengistegundum saman í risastórt glas og kneyfar í gríð og erg
Rífur tunnuna af óþarfanum og tæmir hana
Sk *Hick*ál (Ekki ver)