Komið þið sæl. Ég heiti Jóhanna á bálinu og ég er glæný. Ég vona að ég eigi ekki eftir að troða einhverjum um tær.
Passið ykkur á reyknum.
Skvettir olíu á bálið
Vjer bjóðum yður hjer með formlega velkomna, þó með hefðbundnum fyrirvörum er nauðsynlegir eru við móttöku nýliða hjer.
Þakka þér fyrir olíuna Útvarpsstjóri. Mér verður svo kalt þegar bálið minnkar.
Hvaða fyrirvarar myndu það vera hr. Fuckov?
Kemur á slökkvibíl og slekkur bálið
Þú ættir kannski að breyta nafninu í Jóhanna á brunarústunum.
Nei ég vil vera á bálinu. Það er svo hlýtt og notalegt í logunum. Ég er búin að vera á bálinu í margar aldir og kann orðið ekki annað. Vill einhver vera svo vænn að kveikja aftur í fyrir mig?
Ýtir á Ctrl-Z og bálið afslökkvast
Þetta gæti hugsanlega gert sama gagn Kemur með nokkur tonn af heitu, sjálflýsandi plútóníum.
Svo það varst þú sem ert búinn að sanka að þér öllu plútóníuminu! Ég er búinn að þjást af plútóníumskorti síðan í febrúar. Tekur plútóníummola og stingur í gat á brjóstkassanum
Fúff! Loksins almennilegt ofurafl.
Klórar sér í höfðinu og spáir í hvort það sé viturlegt að hafa geislavirkt Plútóníum nálægt eldhafinu...
Þetta gæti hugsanlega gert sama gagn Kemur með nokkur tonn af heitu, sjálflýsandi plútóníum.
Herra forseti, eruð þjer veikir. Ætlið þjer virkilega að sólunda svo dýrmætu Plútóníum í vesælan nýliða?
Herra forseti. Væruð þér til í að skipta á nokkrum kílóum af plútóníum og þessum forláta kóbaltknúnu vélmorðingjum. Bendir á ógnandi vélmenni með togvíraklippur og vélsagir stangandi út hér og þar
Það líst oss afar vel á Ljómar upp og færir Blástakki 50 kg af plútóníum.
Þetta gæti hugsanlega gert sama gagn Kemur með nokkur tonn af heitu, sjálflýsandi plútóníum.
Herra forseti, eruð þjer veikir. Ætlið þjer virkilega að sólunda svo dýrmætu Plútóníum í vesælan nýliða?
Notkun þess verður undir ströngu eftirliti Kemur fyrir hundruðum eftirlitsmyndavjela og Geigerteljara um allt Gestapóið auk óeinkennisklæddra og algjörlega óþekkjanlegra 'eftirlitsmanna' í síðum rykfrökkum, með hatt og dökk gleraugu.