— GESTAPÓ —
Inntökupróf.
» Gestapó   » Baggalútía
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Léttfeti 4/4/07 13:54

Ég fann hvergi dálk þar sem maður á að spreyta sitt intökupróf hér.

Léttfeti hér læðist nú
leikur sér að orðum,
Les hér þetta ljóðabú
ljúfmeti á borðum.

Mætir kátur klár í hús
kveðskap sinn vill virkja,
Kannski væl mitt bölvað blús
bull vill stundum yrkja.

Tölvuvísur verða til
vont er þeim að henda.
Sumt er flókið sumt ég skil
sumt má mér á benda.

Léttfeti hér leikur sér
lætur í sér heyra,
Lætur vaða vísur hér
viljið þið fá meira?

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Carrie 4/4/07 14:00

Laglegt Léttfeti, þú ert hinsvegar að leita að Innflytjendahliðinu. Gangi þér vel að komast þar í gegn.

Öryggiskona Hlerunarstofnunar og vitavörður.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 4/4/07 14:01

Það er innflytjendahlið annars staðar. Annars felur þú þig bara á Skáldskaparmálum þangað til þú ert sloppinn í gegn um það.

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Léttfeti 4/4/07 14:04

Er prófið tekið þar?

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 4/4/07 14:05

Ýmis próf. Sum stórhættuleg...

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Carrie 4/4/07 14:08

Þú getur líka þurft að láta peninga af hendi rakna.

Öryggiskona Hlerunarstofnunar og vitavörður.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 4/4/07 14:10

Carrie var til dæmis einu sinni Skrilljónamæringur. En það er liðin tíð... ‹Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann›

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Carrie 4/4/07 14:13

En núna er ég vitavörður og það er óneitanlega meira smart en að eiga skrilljónir. ‹Ljómar upp›

Öryggiskona Hlerunarstofnunar og vitavörður.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Offari 4/4/07 14:14

Ég komst nú inn án þess að fara í gegnum innflytendahliðið. Ég fann nefnilega bakdyrnar.‹Glottir eins og fífl›

KauBfélagsstjórinn.
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Léttfeti 4/4/07 14:22

Nú er bara að bíða eftir dóminum, Ef ég fell reyni ég bara aftur.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Gvendur Skrítni 4/4/07 14:35

‹Gefur einkunn›

~~ ÞETTA SVÆÐI TIL LEIGU ~~ •  • X - Gvendur 2015!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Þarfagreinir 4/4/07 14:36

Gvendur hefur augljóslega tröllatrú á Léttfeta!

Greifinn af Þarfaþingi • Fullur símamálaráðherra • Yfiryfirheyrslumeistari Rannsóknarréttar Skoffínsins • Sjálfskipaður últraséntilmaður og öðlingur
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Léttfeti 4/4/07 14:36

Er þetta ekki hæsta einkun?

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 4/4/07 14:49

Jú, sérstaklega í skalanum frá 1 - 10. ‹Glottir eins og fífl›

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Carrie 4/4/07 14:51

Gvendur Skrítni mælti:

‹Gefur einkunn›

Þetta verð ég að læra. Helst að fá tvo ása og vera með mjög svo tilkomumikið comeback (afsakið) á Ásar vinna.

Öryggiskona Hlerunarstofnunar og vitavörður.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 4/4/07 14:58

Léttfeti mælti:

Er þetta ekki hæsta einkun?

Rjett í þessu uppgötvuðum vjer nýtt og alvarlegt vandamál, það hefur steingleymst að ákveða yfir hvaða skala svona einkunnargjöf skuli ná. Leggjum vjer því til að þegar í stað verði hafnar formlegar umræður um það.

Jafnframt vörum vjer Ljettfeta við að nýliðamóttakan hjer getur stundum minnt á e.k. 'busavígslu'. Einungis sumir nýliðar lenda þó á listanum yfir óvini baggalútíska heimsveldisins þó yfirleitt líti í byrjun út eins og þeir geri það allir ‹Fer gegnum háa pappírsstafla›.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
hvurslags 4/4/07 15:19

Ég vil hins vegar bjóða Léttfeta hjartanlega velkominn, hann getur ort ágætlega og tel ég inngöngu hans miðast við þá kunnáttu.

Yfir kalda sítrónu, einn um nótt ég bauva.
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Léttfeti 4/4/07 15:26

Takk fyrir Hvurslags.

» Gestapó   » Baggalútía   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: