Ég legg til að næst þegar dagur er að kveldi kominn hjá Hvurslags komi hann með eina spurningu, enda er melódían eftir Skúbba.
Ég legg til að næst þegar dagur er að kveldi kominn hjá Hvurslags komi hann með eina spurningu, enda er melódían eftir Skúbba.
Meinaru þá að ég hafi frest fram á næsta dag?
Ég bara spyr. Eða jafn æst og öll klassíkin úlgrar innra með mér!
Augljóslega er lang nærtækast að skilja klausu mína Ég bara spyr sem yfirlýsingu um að ég hyggist spyrja. Hinsvegar, (og sú meining hefur styrkzt eftir því sem ég fatta hvað erfitt er að búa til áhugaverða spurningu), þá var ég í raun að árétta spurningu spurninguna á undan, þ.e. um það, hvað liði spurningunni.
Já - ég áttaði mig reyndar á tvíræðni setningarinnar en kaus að túlka hana mér í vil.
Jæja, ég skildi Isak þannig að hann ætti að spyrja nema hann hætti við...hvað um það:
Hvað er þetta og eftir hvern?
Úr einhverju eftir J.S. Bach?
Þú ert á réttri leið...nú vantar bara verkið.
Lítur út eins og "Litla fúgan" en er samt ekki það og hljómar ekki eins...
Úr 'Kunst der fuge' eftir JSBach? Segjum fyrsta fúgan þar þ.e. upphaf grunnstefs.
Nei segjum númer tvö því sú fyrsta mundi vera í C-dúr (engin formerki) en sú næsta með einu b og þá í moll.
Mig grunar sterklega að þetta sé rétt hjá Lopa. Það eru reyndar engin lækkunarmerki á myndinni en það er svo sannarlega eitt lækkunarmerki í d-.
Jibbý. En hér kemur spurning. Einu sinni fyrir langa löngu voru konsertar skrifaðir i 4 eða fleiri þáttum. Hvaða tónskáld er talið hafa breytt konsertaforminu í standard þriggja þátta; hratt - hægt - hratt?