Í dag lærði ég svaka skemmtilegt júdóbragð.
Æfir sig á Dúdda DeVito
Í dag er ég ennþá að læra afhverju það er ekki sniðugt að stinga sig í þumalinn með adrenalíni.
Hvernig hægt er á auðveldan hátt að framleiða metamfetamín úr effedríni.
Hvernig hægt er á auðveldan hátt að framleiða metamfetamín úr effedríni.
Endilega deildu þeirri vitneskju.
Ég skal deila með þér framleiðslunni gegn vægu gjaldi.
Hmm, og hvernig gjald ertu með í huga ?
Ég skal ekki lauma arseniki saman við matinn þinn ef þú deilir uppskriftinni.
Í dag lærði ég að sitja hest.
að Hvæsi er ekkert lamb að leika við.
Í dag Lærði ég að ég hef álíka mikið þol og þrek og lamadýr í hjólastól sem reykir 3 pakka af Camel á dag. Veltir fyrir sér hvort það jaðraði við cannibalisma því Kameldýr og Lamadýr eru jú fjarskyldir ættingjar.
Í dag lærði ég að það er óskaplega gaman að skoða gamla þræði á gestapó, sérstaklega frá þeim tíma þegar Hakuchi, Carrie, Albin og Hexia voru en virkir þátttakendur... Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Í dag lærði ég að það að tína epli af blautum trjám er subbuleg sturtuferð.