Já þið heyrðuð rétt. ÉG er í bölvuðu veseni. Þannig er nú nefnilega mál með vexti að Baggalútía er að verða of víðfeðm, stór og valdamikil til þess að ég geti sinnt starfi mínu sómasamlega. Baggalútíska heimsveldið stjórnar orðið mestallri Evrópu utan Spánar og gömlu Júgóslavíu auk þess sem við stjórnum bæði Rússlandi og Svörtustu Afríku. Síðan eigum við líka Costa Del Sol og Svalbarða auk þess sem ég fór síðastliðið sumar til Kaliforníu og rændi þar allt og ruplaði en landvinningar voru hins vegar litlir. Síðan minnir mig líka að einhverstaðar hafi verið stofnuð Nektarnýlenda, hún er samt týnd og hana þarf að endurheimta. Auk þess er Japan, að ég held, undir sterkri stjórn Hakuchi. Ég hef þó aldrei fengið skíra staðfestingu þar.
Af þessu má því sjá að það er orðið erfitt að finna landsvæði til að leggja undir sig. Það er þó ekki algerlega ógerlegt og sýnist mér að Kína sé algerlega eftir sem og önnur kínaleg lönd fyrir utan Japan. Síðan höfum við ekki enn lagt undir okkur Arabalöndin og alla olíuna sem er þar og heldur ekki Ameríku, en ég hef fengið gögn um að þar sé mikið um kóbaltnámur, sér í lagi í S-Ameríku.
Það er því enn mikið verk fyrir höndum. Ég legg til að við klárum Evrópu algerlega og leggjum svo undir okkur alla Arabíu í snarhasti. Sjáum síðan til.
Gleymið öllu sem ég sagði, Pólland er næsta skotmark.
Glottir geðsýkislega og pússar langdrægu flugskeytin Grrrrr...
Gleymið öllu sem ég sagði, Pólland er næsta skotmark.
Ljómar upp Ásamt Úkraínu Setur gjöreyðingarvopnin í viðbragsstöðu
Hristir lyftiduftssprengju sem springur í höndunum á honum
Svo má ei gleyma því að Jóakim Aðalönd er á ferðalagi á slóðum er enn sem komið er tilheyra ei hinu mikla baggalútíska heimsveldi Sendir Jóakim þrjár kjarnorkusprengjur í bögglapósti ásamt nokkrum flugskeytum og merkir pakkann vel að utan svo öruggt sje að eigi verði óvart mikil sprenging er hann verður opnaður af viðtakanda.
Mikið rétt, um að gera að vera með útsendara á sem flestum stöðum. En er nú ekki nóg komið af pólítísku þvaðri og best að vinda sér að verkinu?! Opnar glerlokið sem hlýfir Rauða takkanum alræmda ÉG bíð bara eftir samþykki, og legg svo einnig til að kjarnaflaugarnar verði settar í viðbragðsstöðu gegn Slóveníu.
Rjett er það og leggjum vjer til að formleg ákvörðun um hugsanlegar aðgerðir gegn Slóveníu verði tekin um kl. 18:30 í dag.
En nú er kominn tími til annarra aðgerða Ýtir á rauðan takka.
Ljómar upp þegar hann fylgist með flaugunum rísa frá jörðinni
...
Ég legg til að við klárum Evrópu algerlega og leggjum svo undir okkur alla Arabíu í snarhasti. Sjáum síðan til.
Arabíu?! Hvað í dauðanum höfum við að gera með Arabíu?! Þar er ekkert nema sandur og... og olía. Og olía! Tökum þennan bölvaða sand og feykjum honum af olíunni! Pant eiga Abu Dhabi!
Kannski þessi Austur-Evrópa þarna fyrst...
Er ekki hægt að dæla sandinum yfir Pólland?
Ljómar upp
Frábær hugmynd.
Rjett er það og leggjum vjer til að formleg ákvörðun um hugsanlegar aðgerðir gegn Slóveníu verði tekin um kl. 18:30 í dag.
En nú er kominn tími til annarra aðgerða Ýtir á rauðan takka.
Klukkan er orðin 18:30.
Sigurinn var of naumur fyrir smekk vorn og olli óþarfa spennu víða um land. Leggjum vjer því til að Slóvenía verði skilgreind sem einn af óvinum Baggalútíu þrátt fyrir sigurinn.
Sammála, við þurfum því sennilega ekki að nota nein gereyðingarvopn að þessu sinni og einföld hertekning og undirokun ættu því að duga. Við skulum senda skriðdrekana af stað í snarhasti.
Sendir 20.000 skriðdreka af stað
Ljómar upp Og fyrst við erum byrjaður að þessu, eigum við þá ekki bara að stefna á Konstantínópel? Les sínar nýjustu upplýsingar um borgina og allt það gull sem þar má víst finna Ljómar enn meira upp
Væri ekki tilvalið að senda littla sveit inní Þýskaland og ræna þýska landsliðinu?