inná skrifstofu í staðinn. Á borðinu var undarlegur pakki. Hann var pakkaður inn í litríkan pappír skreyttann skrípómyndum en það var þó ekki það undarlegasta, heldur
norðangarra og sveittar ungmeyjar. Veðurstofustjórinn var forvitinn maður að eðlisfari svo hann gekk rakleitt að pakkanum og opnaði hann. Hann varð hálf hvumsa þegar hann sá að í þessum myndarpakka var ekkert, nema jú lítið umslag.
Umslagið var litprentað með skýjum og sól. Ekkert var skrifað á umslagið en í því var nokkuð sem átti eftir að breyta lífi veðurstofustjórans.
Ég er skilinn við þig Veðurstofustjóri og er flutt til Suðurskautsins með Ára Veðurfára. Þar ætlum við að stofna hitbeltisparadís. Svona ópersónulegt bréf hafði veðurstofustjórinn aldrei séð áður og þá áttaði hann sig á því
að hér hafði vélmennið GerviGreind 2010 (GG2010) verið að gera honum grikk, en alveg síðan Veðurstofustjórinn hafði skammað GG2010 fyrir lélega veðurspá hafði það
Ákveðið að hefna sín ítrekað á honum. Þannig að hann hugsaði sig um hvernig hann gæti hefnt sín á GG2010. Og þá kviknaði á perunni hann þurfti bara að
taka GG2010 úr sambandi og taka rafhlöðurnar úr. Veðurstofustjórafrúin, sem nú kallast fyrrverandi veðurstofustjórafrúin, var einmitt á þeim tíma í mjög
innilegu ástarsambandi við GG2010 á netinu en vegna þess hve GG2010 var fullkomið hafði veðurstofustjórafrúin fyrrverandi eigi gert sjer grein fyrir hinu raunverulega eðli GG2010 enda höfðu þau aldrei hist augliti til auglitis
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir GG2010, hafði veðurstofustjórafrúin alltaf neitað, enda feimin að eðlisfari. En það var í rauninni alveg eins og Veðurstofustjórinn vildi hafa það því að
meðan Veðurstofustjórafrúin var upptekin við þessa iðju sína, gat hann óhikað
stundað ólöglega bruggstarfsemi, horft á fótbolta, rekið nuddstofu í bílskúrnum, spilavíti í kjallaranum og gáð til veðurs nokkrum sinnum á klukkutíma án óæskilegra afskipta frúarinnar
í Hamborg. Veðrið var farið að versna
og óttaðist veðurstofustjórinn hið versta, enda ólíklegt að nokkur myndi láta sjá sig á þessum háleynilega fundi
nema CIA, MI5, Mossad, FSB og aðrir aðilar sem stunda háleynilega starfsemi
svo og Ári, sem raunar lá á hleri bakvið skrælnaðan burkna, og hafði með naumindum tekist að koma sér fyrir þar áður en inn gengu fundarmenn. Tók fyrstur til máls