Nei. Þynnka er verðlaunin sem þú færð fyrir að vera duglegur að drekka þig til ólífis.
Hefur þú stjórn á öllum gjörðum þínum, alltaf?
Nei, langt frá því.
Hefur þú komið sjálfum þér á óvart?
Já.
Hefur þú smakkað súkkulaðihúðað oreos?
Já. Því miður.
Hefur þú sofið í úlpu einni fata?
Nei.
Hefur þú sofið nakin/n í tjaldi?
Ó-já. Og stundum eru fötin mín horfin daginn eftir.
Hefur þú hlaupið nektarhlaup á útihátíð?
Nei
Hefur þú verið nakin/n úti í meira en 10 stiga frosti?
Nei. Ekki nakinn, en á speedo-miniskýlu.
Hefur þú tekið þátt í píramíðasvindli?
Nei.
Hefur þú tekið þátt í að mynda mannlegan píramída ?
Bara þriggja manna og láréttan. Glottir eins og fáviti
Hefur þú skeint þér með gróðri?
Nei.
Hefur þú verið grænmetisæta í lengri eða skemmri tíma?
6 daga minnir mig að ég hafi dugað. Þessir hryllilegu dagar renna þó saman í eitt. Gætu verið fleiri eða færri.
Hefur þú hitt grænmetisætu sem hefur gaman af stangveiði?
Nei
Hefur þú hitt grænmetisætu sem fer á skytterí ?
Nei, en þó hef ég marga grænmetisætuna þekkt í gegnum tíðina. (Átti að vera svar til Jarma, en á líka við spurningu Villimeyjar)
Hefur þú kallað grænmetisætu grasbít?
Nei. En ég ætla hér eftir að gera það við hvert tækifæri.
Hefur þú tekið eftir að kjafturinn í mönnum er með vígtennur sem bendir til þess að okkur sé ætlað að éta kjöt?
Nei, því höfum vér eigi tekið eftir. Augntennurnar eru þó ágætis staðgenglar. (Yfirleitt eru vígtennur á milli augntanna og framjaxla.)
Hafið þér etið hrátt ket?
Já, og þótti það gott.
Hafið þér þérað fólk - annað en Gestapóa?