Já
Hefur þú séð lifandi hval í sínu umhverfi?
Já, alveg lengst út i á sjó.
Hefur þú séð hákarl í sínu náttúrulega umhverfi?
Já við hval, nei við hákarl.
Hefur þú heyrt hljóðin í flóðhestum?
Nei
Hefur storkur með fullan gogg sest við hlið þér?
Nei
Ertu með lakkaðar táneglur?
Nei.
Hefur þú ákveðið í hverju þú ætlar að vera í kvöld?
Já. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann Hefði alveg viljað fá mér eitthvað nýtt, en það eru ekki hagstæðir straumar í tuskuheiminum núna.
Hefur þú fullkomnað gervið fyrir kvöldið?
Nei, verð sennilega alveg ógerfaður
Hefur þú fengið símtal frá einhverjum sem hélt að þú værir önnur manneskja og farið að tala við þig sem þá manneskju?
Margoft.
Hefir þú svarað í síma og verið talinn einhvur annar og ekki leiðrétt þann misskilning?
Nei, ég er svo góður
Hefur þú verið að reyna að opna bílinn þinn og uppgötvað að þú varst að reyna að opna rangann bíl?
Já, en ég slapp með áminningu.
Hefur þú sest upp í rangan bíl, farþeganum þar inni til furðu?
Nei.
Hefur þú farið í ranga íbúð, íbúum til mikillar furðu?
Já úti í Nanjing þurfti ég að banka upp á allar íbúðirnar í blokkinni áður en ég fann "mína" í fyrsta skiptið sem ég kom þangað.
Hefur þú klárað bjór í einum teyg?
Uuuuuuu, er það ekki nokkuð augljóst? Auðvitað hef ég gert það.
Hefur þú keypt bjórkúta til drykkju í heimahúsi?
Já. (Þegar ég var að ferðast í Víetnam keypti fólk varla bjór í flöskum, allir keyptu 5 lítra kúta með áföstum krana þannig að það var stundum beinlínis erfitt að fá flöskur.)
Hefur þú prófað að spila á túbu?