Nei, en það væri örugglega spennandi.
Hefur þú sofnað í bíó og vaknað í tómum sal eða á annari mynd?
Nei.
Hefur þú keypt skyndibitafæði síðast liðna sjö daga?
Jáhátsh, það er megavika.
Hefurðu sleppt því að borða dominos á megaviku.
Já.
Hefur þú keypt þér skyndibitafæði bara af því að það fylgdi hlutur með því sem þig langaði til að eignast?
Nei.
Hefur þú þurft að taka þá ömurlegu ákvörðun að vera fjarri ættingjum og vinum um jól, stórafmæli og áramót sem liggja saman í einni kös?
Já á síðasta ári... og geri það mjög líklega aftur á þessu ári... Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Hefur þú verið gagntekin/n af heimþrá?
Nei ekki ennþá. Sjáum til í næsta mánuði (samt.. ef ég geng svo langt að fara að hlusta á jólafroðuna á Bylgjunni í gegnum gagnvarpið í einhverju íslensk-jól-eru-best kasti megið þið skjóta mig).
Hefur þú tekið til við að tvista?
Nei, en ég hef sett tvistinn út og breytt í spaða, telst það með?
Hefur þú synt með höfrungum?
Nei, en ég væri til í að smakka höfrung!
hefur þú prumpað í stamp?
Nei.
Hefur þú reynt að skilja skammtafræði?
Já á hverjum degi, þ.e. að skammta mat, læt eðlisfræðina eiga sig.
Hefur þú jóðlað í svissnesku ölpunum?
Nei... væri samt til í að prófa.
Hefur þú jafn mikla andstyggð á Tom Cruise og ég?
Já og örugglega gott betur en það.
Hefur þú borðað krókódíla kjöt?
Nei, maður borðar ekki vini sína... Starir þegjandi út í loftið
Hefur þú tekið eftir að Youtube er bæði ruslageymsla og fjársjóðskofort... ?
Já
Hefur þú þrifið klósettið?
Já, oft.
Hefur þú villst inn á viðbjóð jarðar sem byrjar á H og endar á .is og þurft að þvo á þér augun með sápu?