Ég elska að vakna kl 7 á laugardegi og geta farið aftur að sofa til 12
Ég elska súkkulaði, ég elska sólardaga sem eru samt þannig að maður finnur ekki til ógleði af hita, ég elska ís og ég elska vatn og ég elska fuglana (í fjarlægð) og svo einstaka karlmann svona af og til.
Ég elska að elda góðan mat. Og ég elska enn fremur að borða hann.
Ég elska að finna væntumþykju mína endurgoldna
Ég elska ykkur öll!..
Hikstar og dettur á rassinn.
Sshkál!
Ég elska osta!
Ég elska að finna þúsundkall í rassvasanum sem maður vissi ekki af
Ég elska einfaldleika.
Ég elska rostunga. Þeir eru eitthvað svo ... svo ... stórir.
Ég elska glundroðann í kringum mig Gefur frá sér vellíðunarstunu
Ég elska lífið sem gnista gaf mér
blómið , hvert fræ . sólar ungviði
sálm sársaukans , gróðurmold
legstein ástar . glóðardans
Ég elska Söru.
Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
ég elska rólegheit
Ég elska börnin mín og friðsæla heimilið sem kona mín hefur skapað.
Ég elska þefinn af napalmi á morgnana. Lyktar eins og sigur.
Ég elska forvistaðar gagnagrunnsstefjur. Þær eru svo öruggar og hagkvæmar, og svo gera þær manni kleift að skilgreina nákvæmlega þær aðgerðir sem framkvæma má á gagnagrunn og fela innri virkni hans fyrir biðlaranum, alveg eins og í föllum í forritunarmálum.
Gefur frá sér mikla og njarðarlega vellíðunarstunu