Góð hugmynd. Vaxtalaus blútreikningur. Réttir Herbirni kvittun Fáðér kaffi!
Slengir fótunum upp á skrifborðið og fær sér blút
Jæja. Ek hef svo gaman af bönkum!
Umm, tjahh..., öhhh Veltir fyrir sér um hvað hann getur samið
Hvað um að gera japanska ríkisbankann að dótturfélagi Sparisjóðs Baggalútíu?
Alls ekki slæm hugmynd, en fyrst þurfum við að bæta fjárhagsstöðu bankans og fara í mat.
Fer í mat
Hvar er súrmatsbakkinn minn?
Réttir Stalín súrmatsbakka
Nema þú viljir heldur þorrakjúkling, þorrafranskar, þorrahrásalat og kokteilsósu?
Nei, takk ek er sáttur.
Ek vil sækja um að leggja laun mín sjálfkrafa inn á reikninginn minn.
Myndar fjárfestahóp sem undirbýr fjandsamlega yfirtöku
Ljómar upp
Hey, mig langar að taka lán.
Kemur með 20 mínútna langa ræðu þess efnis að hann eigi skítnóg af peningum og þurfi ekkert á láni að halda
Þetta er það eina sem virkar í íslenskum bönkum.
Hallar sér aftur og fær sér kaffi
Leggur leiðslu úr vasa Stalíns í hvelfingarnar Komið.
Búbbi minn, þú getur ekki yfirtekið Sparisjóðinn, hann er ekki hlutafélag.
Hvæsi, þú ert bara ekki nógu...virðulegur til að eiga þetta skilið. Kannske skipti ég um skoðun ef þú eldar eitthvað gott fyrir mig.
Ég á hérna 4000 froskaskinn...... get ég ávaxtað þau einhvernveginn?
Ég á hérna 4000 froskaskinn...... get ég ávaxtað þau einhvernveginn?
Hugsar
Nei.
Gæti ek fengið að stofna kortareikning?
Þetta er ömurlegur sparisjóður Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Ég hef áhuga á að leggja aleigu mína á reikning hjá yður, fröken Tina.
Hvaða kjör býður þú mér, með 2 millur á mánuði í laun?
Fæ ég lán hjá þér fyrir skútu sem mun sigla um heimsins höf með fjölskylduna í eitt ár eða svo?
Réttir Stalín Gullkort, hirðir peninga Útvarpsstjóra
Og Herra Mús...viltu ekki byrja á þvi að fylla út þessi eyðublöð.
Réttir Mýslunni lítinn bunka og meðalgóðan penna
Æ, ek var búinn að gleyma lottóvinningnum mínum. Hmmm. Hvað ætti ek að gera við hann? Horfir hugsi út um gluggann
Tekur við litla pappírsbunkanum og pennanum Kastar þessum miðlungspenna frá sér og tekur upp Shefferinn úr jakkavasanum
Byrjar samviskusamlega að svara þessum einföldu spurningum á eyðublöðunum um nafn, stöðu, heimilisfang og kennitölu.
Hneykslast á spurningunum á síðasta blaðinu Strunsar til Sparisjóðsstjórans Hvað á þetta að þýða??? Kynhneigð? Tryggð í hjónabandi? Framhjáhald? Börn utna hjónabands? Þér kemur það nú bara hreint ekkert við. Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér