Hér skulu hver og einn búa til sín eigin orð og koma þeim á framfæri ásamt þýðingu.
Hrupp = Skandall
Bagglast = Óvirðing við Baggalút, sbr. guðlast.
Einnig
Neððer = Niðurgangur
Ég hef ekki heyrt nein nýyrði nýlega en legg hinsvegar til að aukning verið á notkun orðsins "strump".
S.br. Strumpumst út í búð. Handlangaðu strumpið. Þú ert strumpaður.
Orðið hefur miklasveigju og getur tekið við af nafnorði, sagnorði og lýsingarorði en ekki atviksorði.
Já, og bæti ek því við að einnig er hægt að gera eins og Grágrítið, koma orðum á framfæri sem nota ætti meira. Líst bara vel á það að strumpast út í búð.
Ég hef ekki heyrt nein nýyrði nýlega en legg hinsvegar til að aukning verið á notkun orðsins "strump".
S.br. Strumpumst út í búð. Handlangaðu strumpið. Þú ert strumpaður.
Orðið hefur miklasveigju og getur tekið við af nafnorði, sagnorði og lýsingarorði en ekki atviksorði.
Bara að Smabaggi væri hérna. Hann hefði orðið alveg strumpaður.
Annars legg ég til að beturvitringar séu þeir sem hingað til hafa verið nefndir ónefninu besserwisserar.
Nú vantar nauðsynlega lútínuþráðinn er hvarf ásamt gamla Gestapóinu. Vjer bendum þó á þetta:
http://www.baggalutur.is/gestapo/profile.php?mode=viewprofile&u=28&n=2572
Ég man líka eftir nýyrðasmíðaleiknum á gamla Gestapó þar sem átti að finna orð yfir hvers kyns fyrirbæri, fólk eða atburði. Hann var skemmtilegur.
Mér finnst orðið pressuger augljóslega geta hlotið nýja merkingu og vera notað yfir hóp fjölmiðlamanna/-kvenna.
Flissar
Gömul kunningjakona mín harðneitaði að kalla Pítur pítur og talaði alltaf um brauðpúða, því að setja grænmeti og kjöt og hvað eina í pítubrauð væri alveg eins og að troða í púða. Mér hefur alltaf þótt þetta snilld hjá henni.
Kelloggsökumaður - Manneskja sem hagar sér í umferðinni eins og argasta fífl. Kann ekki að leggja "í" bílastæðið. Veit ekki hvernig á að nota stefnuljós. Virðir alrdey hraðatakmarkanir. Lætur eins og hann eigi veginn. Og/eða hagar sér á nokkurn almennann hátt eins og hann hafi fundið ökuskírteinið í Korn Flakes pakka frá Kelloggs.
Oss flýgur í hug gamalt og gott orð er var nornun, það er það að dæla inn innleggjum án takmarkana. Það skýrist ef tekið er tillit til hegðunar Nornarinnar á upphafsmánuðum sínum hér, en þá sendi hún inn ótæpilegt magn skilaboða.
Ég held að það mætti fara að taka upp upprunalegt orð yfir fyrirbærið nornun; að fara Offari... Glottir eins og fíll
þeir sem mikið semja eru srundum kallaðir drithöfundar....drita inn innleggjum
Ég held að það mætti fara að taka upp upprunalegt orð yfir fyrirbærið nornun; að fara Offari... Glottir eins og fíll
þeir sem mikið semja eru srundum kallaðir drithöfundar....drita inn innleggjum
Samkvæmt þessum útskýringum má kalla eftirfarandi aðila eftirfarandi nöfnum.
Offari = Offari
Nerma = Drithöfundur
Nú væntanlega má kalla báða aðilla báðum nöfnum.
Til rökstuðnings málimínu bendi ég á að í þessum skrifuðum orðum eru þeir innleggja hæðstir.
Offari Innlegg: 9247
Nermal Innlegg: 5875
1500 innleggjum neðar er svo Herbjörn hafralóns.
Þetta er eingöngu byggt á tölfræðilegum staðreyndum, ekki áliti.
Bónus sama sem Nánös... breytingin segir sig sjálf.
Mikið notað á mínu heimili.Glottir eins og fífl
Enda býrðu sjálfsagt í þriggja hæða einbýlishúsi með útsýni og heitum potti. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Elllskan mín...... nei nei. Mig vantar sárlega heitan pott í garðinn minn og húsið mitt er bara tveggja hæða.klappar tinu vinalega á vangann[s]
Meinvörp er það vont sjónvarpsefni eða til dæmis þættir sjálfsskipaðra réttlætispostula sem benda á mein annarra eins og t.d. Kompás.
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Áramót. Samkoma ára. Dæmi: Ef Hóras, Frelsishetjan og Rýtinga Ræningjadóttir ákveða að hittast ásamt öðrum árum, er um áramót að ræða.