Ég held að margir geri sér hreinlega ekki grein fyrir því hvað þetta með Plútó snerist allt um á sínum tíma og hugsi sem svo að með einu pennastriki hafi Plútó horfið af sporbaug sínum og muni aldregi sjást aftur.
Auðvitað var margt í þessu skaupi ófyndið og hálf misheppnað en ég er reiðubúinn til þess að horfa fram hjá því vegna þess að þarna var nóg af fyndnum atriðum inn á milli.
Þetta var alveg þolanlegt skaup. Ég hló að nokkrum atriðum, en var alveg með pókerandlit við önnur. Ég ætla að sjá það aftur þegar það verður endursýnt.
Þetta skaup var öskrandi snilld! Ég hló mig máttlausan. Byrjunin setti mig alveg í gírinn, já og allt áfengið í blóðinu á mér.
Ég tók skaupið upp. Kannski ég helli mig fullan og horfi aftur á það, þá skil ég kannski brandarana.
Ég hló viðstöðulaust í klukkutíma en það var tíminn sem það tók mig að klára af kútnum, já það var hlátursgas á honum.
Ég hló svo mikið að ég missti af skaupinu´.
Þetta var gott skaup, þeir sem ekki kunna að meta það fullir eða ófullir hafa bara lélegan húmor og ættu að sleppa því að horfa á skaupið.
Fullyrðingar um hvað er góður húmor og lélegur eiga ekki að eiga sér stað. Minn húmor er öðruvísi en þinn og tel ég minn húmor góðan. Þú telur þinn húmor góðan.
Fullyrðingar um hvað er góður húmor og lélegur eiga ekki að eiga sér stað. Minn húmor er öðruvísi en þinn og tel ég minn húmor góðan. Þú telur þinn húmor góðan.
Nei nei... þetta er alveg kolröng skoðun. Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Annars vorun nú nokkur atriði alveg ágæt....
já ágætt alveg......man samt ekki nema vitlaus atriðiflissar
Algjör snilld... út í gegn... var ég fullur, hvað haldið þið?
En ekki hvað.Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Ég ítreka, MÉR fannst skaupið leiðinlegt... Ég var nánast edrú og í góðu skapi. Ég var ekki í eins góðu skapi eftir skaupið.
Ég efast um að ritstjórn Baggalúts hefði skrifað svo lélegan texta eins og mikið af þessu var; né fallið í gamla endurnýtta brandara. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Væri ekki bara best að fá ritstjórn til að gera næsta Skaup?
Ég efast um að ritstjórn Baggalúts hefði skrifað svo lélegan texta eins og mikið af þessu var; né fallið í gamla endurnýtta brandara. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Væri ekki bara best að fá ritstjórn til að gera næsta Skaup?
Heyr, heyr. Nú, eða næstbesta kostinn, Davíð Þór! Ljómar upp
Að mínu mati GREAT! (já, enskusletta, lesist með mikilli áherslu á R-ið) Skaup. Fattaði ekki fyrst að þegar hundurinn sprakk var það út af Plútó. Hló mig máttlausan, hélt að þetta væri bara einhver steik út í loftið. Hætti svo að hlæja þegar ek komst svo að því að þetta snerist um Plútó.
Einnig viðurkennni ek að ek hló mikið að aulabrandaranum í upphafi, Áttu nokkuð ólífur? Ha, Ólífur Ragnar Grímsson?
"Hlutlausa" hasarmyndin um Baugsmálið var þó í uppáhaldi hjá mér. Hef ekki séð svo fyndið atriði í Skaupinu í langan tíma.
Einnig fannst mér nauðsynlegt að þeir myndu gera grín að Orkuveituauglýsingunni. Varð feginn þegar þau gerðu það. Hvað var annars málið með upphaflegu auglýsinguna? Til hvers að auglýsa Orkuveituna? Viðskiptin voru ekki að koma til með að breytast. Svo var þetta hræðilega léleg auglýsing, ótrúlega dýr og löng.
Handritshöfundarnir, Hugleikur og Þorsteinn Guðmundsson stóðu fyrir sínu. Gott Skaup.
Til hvers að auglýsa Orkuveituna? Viðskiptin voru ekki að koma til með að breytast. Svo var þetta hræðilega léleg auglýsing, ótrúlega dýr og löng.
Mikið er ég sammála þessu. Umrædd Orkuveituauglýsing er ein mesta sóun á almannafé sem um getur í síðari tíð.
Eg gjörsamlega sammála öllum hér á þræðinum um hvert einasta orð og Krossgata þú getur Séð skaupið hvenær sem er eins oft og þú vilt næstu vikurnar á netinu