Það tilkynnist hjer með opinberlega að í kvöld höfum vjer og fleiri verið að fá ýmis villuboð auk þess sem Gestapóið hefur verið nokkuð hægvirkt og Gestapóklukkan 5-10 mínútum á undan rjettri klukku (nema tímavjel komi hjer við sögu).
Er vjer reyndum að komast í þráð um jólatrje ( http://www.baggalutur.is/gestapo/viewtopic.php?t=599
) í Málstofunni gerðist t.d. þetta:
Warning: mysql_connect(): Lost connection to MySQL server during query in /var/www/virtual/www.baggalutur.is/html/gestapo/db/mysql4.php on line 48
Warning: mysql_error(): supplied argument is not a valid MySQL-Link resource in /var/www/virtual/www.baggalutur.is/html/gestapo/db/mysql4.php on line 330
Warning: mysql_errno(): supplied argument is not a valid MySQL-Link resource in /var/www/virtual/www.baggalutur.is/html/gestapo/db/mysql4.php on line 331
phpBB : Alvarleg villa
Could not connect to the database
Íhugar að hrökklast svakalega afturábak og hrasa við en hættir við á síðustu stundu
Þetta eru klárlega óvinir ríkisins að berja á múrana utanum Baggalútíu.
Grípur til vopna
Ég varð nú vör við þetta klukkuvesen strax í gær, og minntist á það. Gestapóið er búið að vera ósköp hæggengt...máske einhver hafi gleymt að slökkva á tímavjelinni. Horfir grunsemdaraugum á forsetann
Ef gestapóið verður eitthvað hægara þá stoppar það. Eða það sem verra er, byrjar að fara afturábak. Og ekki viljum við tapa innleggjum okkar aftur!?! Nógu slæmt er að allar daðurvísurnar mínar séu týndar.
Hjá mér birtust villuboð og gestapóið er frekar hægvirkt. Kannski er þetta jólaörtröðin.
Starir þegjandi út í grunsamlegt loftið
Fyrst þegar ég reyndi að fara inn á þennan þráð, fékk ég einmitt sömu villuboð og Vladimir getur um í upphafsinnlegginu. Svo er ég alveg að gefast upp á þessum hægagangi. Ýtir á Senda og sofnar
Það er allt á fullri ferð hjá mér Klórar sér í höfðinu
Þetta er allt ríkisstjórnin! Klukkan inná Gestapó getur ekki verið vitlaus, ríkisstjórnin hlýtur að hafa breytt klukkunni til að rugla okkur!
SAMSÆRI! IIllfygli með meiru