Hlustar á hugljúfa hugvekju á RÚV en fattar ekki að útvarpið hefur vanstillst. Vaknar upp við gospelmartröð
Mikið er hann Offari nú óheppinn maður...
Afhverju segir þú þetta?Klórar sér í höfðinu
Það var mikið að einhver hafði rænu á að endurvekja Emblu. Þökk sé þér, Sæmi Fróði. Ljómar upp og fær sér kaffi og flatköku með feitu hangiketi
Hnei, eruð þið hér! Ljómar uppStekkur hæð sína
Hlammar sér á koll við eldhúsborðið og fær sér mjólk og kleinu.
Heilt veri fólkið!
Já sæll! Er ekki rétt að laga kaffi og finna eitthvert bakkelsi?
Hvernig væri það. Gramsar ofan í skúffu eftir mjólkukexi
Kveikir á kaffivélinni
Þiggur í nefið
Herbjörn hefur gleymt að kveikja á kaffivélinni
Slekkur á vélinni
Er hún í gangi núna ? Klórar sér í höfðinu
Það hefði kannski verið betra að setja bannsetta kaffivélina í samband. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Er ekki öruggast að hella uppá með gamla laginu? Fyllir hraðsuðuketillinn af vatni og stingur honum í samband
Lemur Golíat með hækju
Andskotans krakkar alltaf hérna.
Klæðir sig í ullarsokka og kveikir á gufunni
Verst ótrúlega fimlega með göngustafnum Gelgjubana Láttu nú ekki svona Hvæsi minn. Gleymdirðu að taka lyfin þín í morgun?
Fær sér kaffi og fjórar kúfaðar skeiðar af straujara í bollann. Hellir í undirskálina og sötrar Er lestur miðdegissögunnar ekki að fara að hefjast? Hækkar í viðtækinu
Ljómar uppÞað ku eiga að endurflytja Bör Börsson í ljósi nýjustu atburða í samfélaginu. Mikið var það alveg hreint skelfilega ánægjulegt. Stekkur hæð sína og býður - að endingu - í nefið
Jahá, og hver ætlar að lesa? Kemur sér fyrir við eldhúsborðið með te í krús og beyglur með rifsberjahlaupi. Elsku fáiði ykkur endilega rifsberjahlaup.
Skyldi Sæmi Fróði vera dauður? Hann hefur ekki sést hér í hartnær tvö ár. Hellir upp á könnuna og slengir poka af kleinum á borðið
Fær sér kaffi og strausykur útí
Dýfir kleinunum í kaffið og sýgur þær svo upp í sig
Fer Bör ekki að byrja? Mér fannst Óli í Fitjakoti svo helvíti skemmtilegur kall.
Þiggur í nefið