Takk fyrir að benda mér á það... Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Næsti Pói er ekkert að flýta sér.
Rjett er það enda erum vjer komnir í síðbúið jólafrí Ljómar upp.
Næsti Gestapói er kremkexjetandi krummi.
Nei.
Næsti pói étur baunir í hvert mál.
Mikið rétt, enda þekkum við Texi bæði hvurslag gæðafæða baunir eru.
Næsti pói er með mislangar stórutær.
Nei, ég er bara með annan fótinn framar en hinn.
Næsti pói stundar yoga þrátt fyrir að ná ekki til jarðar með höndunum nema beygja hnén.
Nei en ég borða stundum jógúrt... gildir það?
Næsti pói er í raun dáinn en er bara í afneitun.
Það er lygi!
Næsti Pói er í borgaralegum klæðnaði.
Já iðulega, er sloppin við sloppinn!
Næsti pói er skrúðgarðyrkjumeistari og blómaáhugamaður.
Nei en ég get alveg á mig blómum bætt.
Næsti pói er að bíða og býst við að þurfa að bíða nokkuð lengi.
Tjah, ekki nema svona klukkustund í viðbót.
Næsti pói er einn af þessum alkóhóllegnu gjálífisgosum og vessahvetjandi fleðurökkum sem vaða hér uppi án eftirlits.
Já.
Næsta póa er hér eingöngu vegna þessara fleðurrakka.
Heldur betur!
Næsti pói sá fleðurakka í leðurfrakka og getur sagt það hratt, fimm sinnum.
Já.
Næsti pói veit hvað varð að honum Billa.
Nei.
Næsti pói veit hvað varð af honum Billa.
Eigi lýsir það oss.
Næsti Pói er nýskriðinn fram úr - með stýrur í augum.
Nokk er það rétt
Næsti gestapói er móskjóttur
Nei, veit ekki einu sinni hvað það er en er viss um að svo er ekki.
Næsti pói er skárri þegar hann er verri.