Þetta var skemmtilegt áhorfs, var seinasta upptakan gerð í á Þarfaþingi, ellegar í áramótaskralli, með hjálp tímavélar?
Veltir fyrir sér hvort tímavélin sé loks komin úr lagfæringu.
Gat nú verið að Hjálpræðisherinn væri settur í að leika í myndbandi hljómsveitarinnar. Var ekki hægt að finna einhverja alvöru leikara?
Kannski vildu þeir undirstrika að þeir væru í stuði með Guði.
Starir þegjandi út í loftið
En þetta er lagið, gamlaárslagið, það er alveg klárt.
Já, því er ekki að neita. Ljómar upp
Nei, öldungis eigi.
http://filmus.is/qts/baggalutur.mov
Afhverju get ég ekki séð þetta?
Af því að þú varst frekt barn.
Ég gat það ekki heldur, en fann hlekk á forsíðu Baggalúts, sem svínvirkaði.
Ég gat ekki heldur opnað linkinn á forsíðunni Blótar foreldrum sínum í sand og ösku fyrir að hafa ekki vandað sig við uppeldið
Heyrðu! Óttalegt bull er þetta í mér, ég gat alveg opnað þessa tilvísun, en ekki fyrr en ég hafði uppfært Snarstundir (QuickTime).
Er orðlaus yfir þessari gleymsku sinni
.... enn orðlaus
Lélegt.
Hvaða endemis bull og vitleysa er þetta! Manni sárnar bara. Ég veit ekki betur en Baggalútarnir og við hjálparkokkar hafi lagt lagt sitt ýtrasta fram við að framreiða þennan filmubút þér og þínum til skemmtunar og gleði og svo fær maður bara svona í andlitið?
Það var þá allt þakklætið sem maður fær fyrir að fórna sér fyrir listina. Iss og sveijattan!
Eftir að hafa sett inn alls konar aukaeplabúnað tókst mér loks að sjá þetta, og mér finnst þetta alveg frábært!
Stekkur hæð sína
Ljómar upp
Mér finnst þetta ljómandi lag og smart myndband.
Er strax komin í agalegt veisluskap. Trallalalalla
Ég er búinn að hlusta og horfa á þetta í mesta allan dag, þannig að svefn er ekki ofarlega í huga mér núna. Ég vill bara komast í gamlárspartí sem fyrst.
Getum við ekki haldið gamlárspartý núna?
Fer í spariskó og setur á sig gloss