Kærur vinir. Ég er grenjuskjóða og stundum græt ég svo mikið að sölt tárinn , erta geirvörturnar. þessi þráður er hugsaður að viðra skoðannir hugdettur og kanski hin einu sönnu svör við spurningum sem við sjálf ekki getum svarað.
Ég byrja því með að spyrja : Af hverju hafa karldýr geirvörtur og af hverju renna slatir droparúr augunum þegar við hryggjumst?
Þegar stórt er spurt er oft fátt um svör
Af hverju er svona mikið af spurningaþráðum hérna?
Karldýr hafa geirvörtur vegna óbærilegs erfðafrœðileg skyldleika við kvendýr sömu tegundar og tárin eru sölt í þeim tilgangi að sótthreinsa augu vor.
Karlmenn hafa geirvörtur svo við konurnar getum pínt þá. Það er sérlega áhrifaríkt að klípa í geirvörtur karlmanna þegar maður vill vera andstyggilegur.
Karldýr hafa geirvörtur vegna óbærilegs erfðafrœðileg skyldleika við kvendýr sömu tegundar og tárin eru sölt í þeim tilgangi að sótthreinsa augu vor.
Af hverju í sorg ? ber hinn síglaði skít í augum sínum?
Er hægt að kalla rifjárn rifjárn ef það er úr plasti?
Af hverju í sorg ? ber hinn síglaði skít í augum sínum?
Eiríkur! Hvað varð af Gísla? Og Helgi dáinn? Faðmar Eirík
Elsku Eiríkur, hjartans kallinn, getum við eitthvað gert fyrir þig? Horfir djúpt í augun á Eiríki.
Karlmenn hafa ekki BARA geirvörtur... heldur LOÐNAR geirvörtur, hvað er það?
Er hægt að kalla rifjárn rifjárn ef það er úr plasti?
Nei, svo teljum vér eigi vera.
Karlmenn hafa ekki BARA geirvörtur... heldur LOÐNAR geirvörtur, hvað er það?
Loðnar geirvörtur eru, eins og orðin benda til, loðnar geirvörtur. Þess utan reiknazt oss til að karlar séu loðnir á sömu stöðum og konur, einungis örlítið meira. Á það við öll líkamshár, jafnt í andliti sem og á brjósti. Höfuðhárin virðast vera undantekningar frá kenningu þessari.
Af hverju koma tár þegar við meiðum okkur eða syrgjum og líka þegar við gleðjumst?? Af hverju koma tárin þá líka? Af hverju koma þau ekki bara þegar við viljum fara að sótthreinsa augun?
Karlar hafa geirvörtur til að markaðurinn fyrir geirvörtuhringi hrynji ekki.
En er Geir með vörtur?
Karlmenn hafa geirvörtur svo við konurnar getum pínt þá. Það er sérlega áhrifaríkt að klípa í geirvörtur karlmanna þegar maður vill vera andstyggilegur.
Ég vona svo sannarlega að þú hafir bara heyrt þetta eða lesið um þetta. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Ég vona svo sannarlega að þú hafir bara heyrt þetta eða lesið um þetta. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Hvað heldur þú að konur tali um þegar þær hittast í svokölluðum saumaklúbbum? Hekl? Glottir eins og fífl

Ég hef ekki hugmynd um hvað konur tala um í saumó.... jahhh, nema þegar einhver mætir ekki. Sem er líkast til ástæðan fyrir því hvers vegna það er svona góð mæting í saumaklúbba, það þorir engin að mæta ekki. Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Klapp klapp klapp klapp fyrir seinasta ræðumanni. Þetta er einmitt ástæðan fyrir því að ég nenni ekki að hanga í svoleiðis.Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Ef til vill koma sorgar- og gleðitár til að sýna að við erum að upplifa mikið tilfinningalegt upprót þá stundina. Og sársaukatárin því að það er aldrei að vita nema að hvað svo sem það er sem veldur sársaukanum gæti líka komist í augun.