Hvaða argaþvarg er þetta annars! Sveiattan, að þið skulið kalla ykkur fullorðið fólk. Atast í barnabókmenntum? hnussar yfirlætislega
Djöfull var Snabbi fullur síðustu helgi.
Hvaða argaþvarg er þetta annars! Sveiattan, að þið skulið kalla ykkur fullorðið fólk. Atast í barnabókmenntum? hnussar yfirlætislega
Ég kalla sjálfan mig ýmsum nöfnum, en fullorðinn er ekki eitt þeirra.
En múmínið er töff. Alvarlega fín sýra sem kauðinn sem skrifaði það hefur verið á. Mitt uppáhald var alltaf litli loðni asnakjálkinn sem stundaði það helst að læsa fólk inni og/eða vera læstur inni. Hann var flottur á því.
Kauðinn sá er reit sögurnar um múmínálfana var raunar kvenkyns, og hét hún Tove Jansen. Svo sem Urho Kalevi hefir gefið í skyn var hún finnsk.
Reyndar tók bróðir hennar við myndasögunum seinna. Þá urðu þær miklu pólitískari.
Djöfull var Snabbi fullur síðustu helgi.
Það er rétt mælt, hann var helvíti fullur, var ekki Snorkstelpan þarna með honum? Ætli það hafi verið eitthvað alvarlegt?
Kauðinn sá er reit sögurnar um múmínálfana var raunar kvenkyns, og hét hún Tove Jansen. Svo sem Urho Kalevi hefir gefið í skyn var hún finnsk.
Tove Jansson er nafnið. Skrifað með tveim S-um og O-i.
Afsakið besserwissið, ég þurfti bara að fá útrás fyrir það einhversstaðar.
Ætli það séu til góðar uppskriftir yfir múmínálfa? Mig vantar gamlárssteik.
Ég myndi halda að það væri viðeigandi að mauksjóða múmínálfinn í Finlandiavodka... Starir þegjandi út í loftið
Það er möguleiki. Ég geri ráð fyrir að ég eldi ekki allan álfinn. Kannski múmínálfalæri eða hryggur myndi duga. Ætli einhver partur sé betri en annar?
Ég myndi halda, svona af líkamsvextinum að dæma, að það sé mestur matur í múmínálfasviðum.
Gljáður múmínhryggur er eitthvað það allra besta sem ég fæ. En svo eru nýrun líka góð.
Það eina sem ég man úr þáttunum sem voru sýndir um 1980 voru tveir litlir skrýtnir kallar sem töluðu eitthvað undarlegt mál, allt endaði á sömu leið og við krakkarnir á róló vorum alltaf að herma eftir þessum litlu köllum .....getið þið sem vitið betur en ég komið með dæmi um nokkur svona orð.Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Ertu ekki að rugla saman múmínálfunum og klaufabárðunum? Ég held þeir hafa talað tékknesku eða eitthvað slíkt, voru brúður en múmín (þeir eru engir álfar, skil ekki þessa nafngift) voru teiknaðir.
Nei ég man eftir þessu líka, gott ef þessir litlu kallar komu ekki fram í bókunum líka. Ef ég man réttsla enduðu flestsla orðsla á -sla.
Passlar þaðsla?
Já þeir. Ljómar upp
Já gott ef ekki er....Stekkur hæð sína