Klórar sér ákaft í höfðinu Skyldi ég eiga umrædda plötu?
(Og Dyrnar eru amrískar.)
Nei, um er að ræða frumburð skammlífrar en sérlega áhrifamikillar hljómsveitar.
Klórar sér enn ákafar í höfðinu
Ja, þetta fer kannski að verða spennandi, hver veit?
Hljómsveitin sendi frá sér á ferlinum aðeins þrjár breiðskífur. Téður frumburður kom út árið 1979, önnur platan árið eftir og þriðja árið þaráeftir, en sú síðasta var tvöföld.
Glottir Jæja, nú kemur þetta...
Söngvarinn var flogaveikur.
Ah.
Gleðideildin (Joy Division).
Er það ekki þetta sem Tinni er að spyrja um? Joy Division - Unknown Pleasures.
Þarfagreinir var á undan svo hann má eiga réttinn.
Jú, mikið rétt, en Herbjörn kom þó með plötuna og hafði fyrir því að birta umslagið, þannig að á hann ekki réttinn. Þið eruð samt báðir mjög rúmlega ágætir. Þið eruð eiginlega bara mjög.
Það þýðir þá að ég verða að upphugsa einhverja spurningu.
Já, Herbjörn, komdu með spurningu sem er mjög og ekkert annað.
Jæja, hér kemur ein létt en tvíþætt.
Hvaða hljómsveit söng eftirfarandi textabrot og hvaða íslenska hljómsveit tók lagið við textann upp á sína arma og gaf út á plötu?
Bónusstig fást fyrir að nefna heiti upphaflega lagsins og á hvaða plötu það var.
A small boy, bucket in hand
Building castles in the sand
Thinking of his life that lies ahead
An engine driver, sailor, why not a king
Of the sand castle as the gypsy woman said
Leningrad Cowboys! Jííííhaaaa....
Nei.
Eru ekki fleiri tillögur?
Jæja, spurningaleikir eru ekki í miklu uppáhaldi hjá Baggalýtingum þessa stundina, en getur hugsast að kveðskapurinn komi úr ranni Don McLean?
Nei, Don kom hér hvergi nærri.
Því má svo bæta við að hljómsveitin, sem flutti lagið upphaflega var bresk.