Rokkleikur Lars.Þessi leikur er mjög öðveldur þú bara spyrð einhverja spurningu um rokk til dæmis um textabrot og síðan reynir einhver að svara .
Í hvaða lagi er þetta textabrot AS WE LIVE A LIFE OF EASE?
Er þetta úr Yellow Submarin með The Beatles?
Úr hvaða texta er þetta brot "You Jump In Front Of My Car" ?
Nei, Nei ekki nálægt því.
Nei þetta er ekki heldur með MetallicA.
ÖÐVELDUR??? Ertu ekki að grínast? Og það hefur aldrei drepið neinn að ýta á bil-slána (space-takkann fyrir þá sem ekki skilja) á eftir punkti. Sumir gera það m.a.s. tvisvar sinnum.
Annars er þetta Hendrix. Crosstown Traffic.
Höfundurinn er þekktur fyrir soloferil.
Annars er þetta Hendrix. Crosstown Traffic.
Mikið rétt þú átt spurningarrétt.
Hvað hét söngvari T. Rex og hvað hét fyrsti trommuleikarinn í hljómsveitinni (hét þá Tyrannosaurus Rex)?
Gæti Marc Bolan hafa verið söngvarinn? (Annars veit ég ekkert um þessa hljómsveit.)
Var trommarinn ekki Steve Peregrin Took og söngvarinn Gloria Jones, rétt ?
Þið eruð samtals með rétt svar! Marc Bolan var söngvarinn og Steve "Peregrin" Took var trommarinn. Gloria þessi var hins vegar kærastan hans Marcs og söng aðallega bakraddir held ég.
Þá er það bara að ákveða hver fær réttinn, ég legg til að Billi og Lars hittist úti á plani og fari í svona dance-off...
Ég hrifsa réttinn.
♪♪
You walk into the room
with your pencil in your hand
you see somebody naked
and you say, "Who is that man?"
♪♪
Hver orti?
Hvað heitir lagið?
Hvaða öðrum listamanni leið eins og söguhetju þessa lags?
Og í hvaða lagi var það?