Æ, ég held ég fái mér einn bjór - eða tvo. xT
Er að spá í hvort eg nenni að fara að glápa á sjóræningja í bíó... langar reyndar í nachos svo líkurnar eru yfirgnæfandi...
Vjer erum að fara að smella á 'Senda'.
Jæja, ég ætla að heimsækja frænda minn og fara með honum í bíó.
Ég vil ekki kalla það stefnumót.
En ég vil það. Glottir eins og fífl
Ég get ekkert gert núna nema verið til taks við salernið... ég er í magakveisu.
Jæja, ég ætla að heimsækja frænda minn og fara með honum í bíó.
Ég vil ekki kalla það stefnumót.
En ég vil það. Glottir eins og fífl
Þarna kemur fram sá blábrigðamunur á 'deit' og stefnumóti er vjer nefndum í öðrum þræði. Þetta er eigi unnt að nefna 'deit' en með góðum vilja má e.t.v. nefna þetta stefnumót.
hmm... hvað varð um date = dagsetning? Er Hakuchi ekki bara að fara á dagsetningu?
Nei, stefnumót er ekki dagsetning og er þar kominn einn munur á stefnumóti og 'deiti'. Í einhverjum öðrum þræði var hinsvegar einhver að fara á dagsetningu.
Horfa á kvikmynd sem fjallar ekki um stefnumót heldur sjónhverfingamann.
Galdrar kanínu upp úr pípuhatti. Stikar að því loknu í átt að vitanum sínum með hárið glampandi af geislum kvöldsólarinnar.
Leggjast í gólfið og berja niður hnefunum og sparka út í loftið og orga eins og geðsjúklingur af vonbrigðum og reiði.
Ég ætla núna að fara að senda tölvupóst.
Ég er að hugsa um að fara í sturtu fyrir svefninn
Ég er að hugsa um að sturta í mig meira áfengi fyrir svefninn.
Ér að hugsa um að vera blindfull annaðkvöld
Ég hugaa að það sé ekkert óvitlaust.
Ég ætla að drífa mig út í apótek áður en það lokar. Geri ráð fyrir að allt verði lokað á morgun.
Er ekki opið hjá Vímusi alla daga?