Fyrst ég er byrjuð á þessu...
Ég er að fara að skríða upp í rúm og horfa á sjónvarpið þar til ég sofna.
En þið?
Eitthvað svipað... fyrir utan þessa heimavinnu. Ég elska þegar ég geymi hana til miðnættis.
Læra fyrir bóklegt bílpróf... í þriðja sinn.
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Ég var einmitt að keyra í dag! Gekk nokkuð vel fyrir utan það að einhverjir krakkagemlingar voru að þvælast fyrir mér. Við skulum bara segja að þeir þvælast væntanlega ekki fyrir mér aftur...
Annars er ég hugsanlega kannski að fara að lúlla.
Lúlla... pff... Ætlar þú þér að láta sjá þig á árshátíðinni?
Ef ég lendi ekki í vandræðum útaf þessum bannsettu krökkum...
Nei, jújú. Ég mæti.
Ég er að fara í skólann. Um leið og ég nenni að klæða mig.
Ég er að hugsa um að horfa á fleiri Sex and the City-þætti.
Búa til skýrslu. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Ég er að fara að skríða upp í rúm.
Ég held ég fari að skríða upp í rúm líka.
Fyrst ætla ég samt að kveinka mér aðeins.
Kíkja smá meira á námsefnið áður en ég fer í próf.
Ég er að fara í sturtu.
Það er ógeðsleg lykt af hárinu á mér eftir allar reykingarnar í gær.
Ég ætla í Kolaportið á eftir.