Af hverju viltu endilega hafa hann nálægt Svartahafi? Nei, hann er ekki á krá. og ekki við Asovshaf.
Tja, hann er einhvers staðar í Rússlandi, gæti svo sem vel verið einhvers staðar norðar, jafnvel í Arkhangelsk. Þetta er mikil víðátta og ég er alveg að gefast upp.
Ansi varstu naskur. Þú hefur greinlega hlustað á skipafréttirnar í gamla daga. Ljómar upp
Þegar ég fór að skoða kortið´fann ég borg, rétt austan við Moskvu sem heitir Vladímír. Ég var að hugsa um að færa hann þangað, en hætti við.
Hafði ég þá loksins rétt fyrir mér? Ljómar upp Jú, jú, ég man eftir skipafréttunum.
En viltu ekki vita hvar í borginni hann er?
Úff, ætli hann sé ekki um borð í einhverjum dallinum í höfninni. Ég hef aldrei komið þangað, þannig að ég þekki ekkert til í þessari hafnarborg.
Það gerir ekkert til þó þú hafir aldrei komið þarna, þetta fyrirbæri er í flestum rússneskum borgum.
Já, þá segi ég að hann sé í dómkirkjunni í Arkhangelsk.
Það færi vel á því, það var víst jóladagur þar í dag. En hann er ekki þar.
Nú ertu alveg að gera út af við mig. Ekki er hann þó í fangelsi?
Hahaha, nei, hann er utanhúss.
Nei, hann er víst utanhúss einhvers staðar í Arkhangelsk.
Alveg rétt, ég sé hann þarna við styttuna.
Stekkur hæð sína
Er þetta annars ekki örugglega Lenínstyttan?
Er ég þá loksins búinn að koma með fullnægjandi svar? Strýkur svitann af enninu
Já þetta dugar, og nú fer ég að sofa. Og kem svo eins og venjulega aftur eftir klukkutíma af því að ég get ekki sofnað. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Þá á ég trúlega spurnarréttinn. Ég ætla líka að fara að sofa og reyna að staðsetja manninn einhvers staðar annað kvöld.