Ég á það til að lesa vitlaust út úr orðum. Undarlega oft held ég að einhver hafi búið til nýjan leik sem heitir Hvar er maðurinn en þá er það bara gamli góði Hver er maðurinn. Ég er samt að hugsa um að búa þennan leik til, reglurnar verða eftirfarandi:
Leikstjórnandi hugsar sér stað.
Staðurinn verður að vera vel þekktur (má vera bygging (t.d. Empire State, Kringlan), fjall (t.d. Esjan, Kilimanjaro), útivistarsvæði (Heiðmörk, Hlíðarfjall) eða bara einhver þekktur staður, það mætti t.d. ekki hugsa sér Kóngsbakka 18, 3.hæð til vinstri eða álíka.)
Aðrir leikmenn spyrja já og nei spurninga, t.d. eins og eftirfarandi leikrit sýnir:
Leikstjórnandi=L, aðrir leikmenn=A
A: Er maðurinn í útlöndum?
L: Nei.
A: Er maðurinn í Reykjavík?
L: Já.
A: Er maðurinn innanhúss?
L: Já.
A: Er maðurinn í verslunarmiðstöð?
L: Nei
A: Er maðurinn í íþróttamannvirki?
L: Já.
A: Er maðurinn í Laugardalshöllinni?
L: Já! Gjörðu svo vel, þú átt réttinn til að spyrja næst.
Jæja, nú hef ég sett manninn niður á góðan stað, spurningin er; HVAR ER MAÐURINN?!
Ég veit samt ekki alveg hvort þetta er skemmtilegur leikur, leikjafræðilegur Darvínismi mun leiða það í ljós...
Er hann á Íslandi?
Já!
Það byrjar vel. Ljómar upp
Í Reykjavík?
Flissar
Er hann í Breiðholtinu?
Já við Þarfa (Bæði við spurningunni og því að leikurinn byrji vel)
Nei við Nornu.
Er hann heima hjá þér?
Er hann í Dúfnahólum 9? Felur fjarstýringuna
Undarlega oft held ég að einhver hafi búið til nýjan leik sem heitir Hvar er maðurinn en þá er það bara gamli góði Hver er maðurinn
Kostulegt að lesa þetta, hjá oss var þetta alveg öfugt því allra fyrst lásum vjer nafnið á þessum þræði sem Hver er maðurinn.
Er maðurinn staddur inni í einhverri byggingu ?
Er hann í lyftu?!
Hann er:
Ekki heima hjá mér.
Ekki í Dúfnahólum 9. Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Vestan Elliðaáa.
Ekki inni í byggingu.
Ekki í lyftu.
Er hann í 101?
Er hann í Hallgrímskirkju?
Er hann sunnan Miklu-/Hringbrautar?
Jæja, hann er:
Í 101.
ekki í Hallgrímskirkju (hann er utandyra, muniði?!)
Norðan Hringbrautar.
Stendur mannauminginn og mígur utan í styttu Ingólfs Arnarsonar og lítur niður á seðlabankan?
Er hann í hljómskálagarðinum?