Vjer vorum að finna upp nýja laumupúkunaraðferð Ljómar upp. Þó er sem stendur á henni sá galli að hún er nokkuð flókin í framkvæmd Íhugar hvernig best sje að framkvæma laumupúkunina
Hrökklast afturábak og hrasar við
Og rjett í þessu fundum vjer upp tvær laumupúkunaraðferðir til viðbótar. Langt er síðan vjer höfum fundið upp svona margar laumupúkunaraðferðir á einum degi Ljómar upp. Önnur þeirra er flókin í framkvæmd en hin heldur einfaldari.
Þess ber að geta að enn hefur engin þessara aðferða verið prófuð.
Í kjölfar þeirra frétta má nefna að enginn hefir mætt á vorn uppáhaldslaumuþráð langa lengi.
Ég var að gerast sigurvegari í "Sá sem er síiðastur að svara - vinnur"
Vér vorum, rétt í þessu, að fylgjast með skársta liði íslenzkrar knattspyrnu sigra sinn leik, og ganga nærri meistaratitli.
Ég var að gera mér í hugarlund hvernig leikurinn var sigraður.
Ég var að uppgötva að ég á rafmæli í dag. Ljómar út og suður
Skrifa félgsrit og fá efasemdir um hvort það eigi sér tilverurétt...
Vakna allt of snemma.
Standa yfir eldra afkvæminu og sjá til þess að rolluskíturinn væri almennilega þveginn af.
Eta slátur og kartöflumús.
Ég var að opna blút og er geðveikt hress og voða gaman að vera ég.
Opna blút Andþóri til samlætis. Er lika voða ánægður með sjálfan sig.
Horfa á Baggapó
Ég var að undirbúa það að senda einni vinkonu minni útiföt af krakkaormunum mínum svo hennar börn geti notað þau og slitið þeim almennilega út.