Upprifinn ber sáttasemjaranafnið með rentu og ég er stolt af honum.
Grýta kann sig, enda sönn dama.
Upprifinn kann sig stundum og stundum ekki. Enda sannur íslenskur skáldvíkingur. xT
Andþór sást loka munninum á árshátíðinni - og fór það honum ekkert svo mjög illa. Glottir eins og fífl
Billi bilaði er með ágætis söngrödd.
Regína er topp klassi. Hún er kurteis og góð. Samt er hún með þennan netta brodd í því sem hún segir... þegar hún óskar þess. Það virkar í hvert skipti.
Regína fær hæfæv hvenær sem hún vill frá mér. Pottþéttur pakki.
Klæðir sig í næntís föt og dansar smá MC Hammer
Cant touch this! Du du dudud.
Jarmi er attitude-ið í gegn. Ég fíla það.
Tigra er hress dama.
Nermal er eðalpói. Hann er hugmyndaríkur og fyndinn, en hans aðalkostur er þó hversu opinn og einlægur hann er við sampóa sína, (altént suma). Hann er alla vega alveg nógu góður til að vera grænn.
Huxi er hugmyndaríkur Pói sem er hjálpsemin uppmáluð og býðst til að gera þá grikki, sem aðra langar að gera en .... gera ekki, svo hinir falli ekki í freistni.
Krossgata er skýr í hugsun og nösk á smáatriði. Hún hefur yndislega nærveru og bros sem smitar útfrá sér og gleður aðra.
Andþór er bráðskemmtilegur karakter.
Upprifinn er sennilega einhver færasti sorakjaftur þessa lands og er það mikið sagt. En umfram aðra þá er hann líka einstaklega fær að hrósa og gleðja aðra. Það má segja með sanni að Upprifinn sé meistari hins skrifaða orðs og erum við heppin að fá að njóta hans hér.
Andþór er hagyrðingur.
Regína er allgjör snillingur í öllu sem viðkemur einhverju sem skiptir máli. Hennar viðkunnanlega nærvera nær að halda þessum vef sem sómasamlegum vettvangi skynsamlegra umræðna og fágun hennar og yndisþokka vegur stórlega upp á móti almennum dónaskap og hortugheitum sem framamenn í svívirðu hér nota hvert tækifæri til að brúka.
Hún er einstaklega orðheppinn og skemmtilegt skáld sem hikar ekki við að aðstoða og hugga okkur nýgræðingana sem ekkert vita og öðrum þykir pirrandi.
Hún er fremst í flokki snillinga sem eru hér samankomnir.
Andþór er langorður. Hann er samt ágætur og fer hratt fram í að yrkja. Svo er hann oft mjög fyndinn og á til að valda því að ég..Gríp um kvið mér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Huxi þó grænn sé á fleiri vegu en einn, stendur mér vel framar í flestu sem hér er hægt að stunda. Nema kannski því að hann hefur enn ekki látið hengja sig í mafíuleiknum en vonandi stendur það til bóta.
Hann þarf ekki að vera langorður því hann er það greindur að geta skilað meiningu sinni og húmor frá sér í hnitmiðuðu máli. Hann er smekkmaður á hvað er fyndið enda með doktorsgráðu í hvernig á að koma fólki til að hlægja.
Andþór er guðvelkomin viðbót á þetta stafræna félagsheimi sem Gestapóið er. Kurteis, skemmtilegur og námsfús er hann.