Eigi er Dula lengur dularfull. Hún er hinsvegar ennþá gulfull og hefði nafnið Gulfulli maðurinn því e.t.v. passað betur en upprunalegt nafn hennar hjer. Nýja nafnið er hinsvegar prýðisgott og lýsir hún upp Gestapóið með nærveru sinni og einni gulustu ásjónunni á staðnum. Það er afar gott því bláir Gestapóar verða þá hugsanlega grænir.
Eða Fullgula Dula.Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
annars er Vlad með slemmtilegri ofurknúsi póum sem ég veit um.
það er ekki annað hægt en að vera ánægður þegar dula lýsir upp umhverfi sitt með fagurgulum bjarma.
Ég las á einhverjum þræði að Upprifinn væri töffari í kvöld.
Ef einhver er töffari þá er það blóðugt. Það svoleiðis drýpur af henni töffaraskapurinn í hverju innlegginu á fætur öðru. En hún verður að passa sig á einu, og það er að hún má ekki trúa öllu sem hún les um Upprifinn. Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er
Huxi er ákaflega skemmtilegur og hnyttinn í tilsvörum. Hann er þó grænn sem annaðhvort stafar af þekkingarleysi þegar hann valdi sér mynd eða sleikjuhátt við forsetann. Hann er vel að kominn nýliðaverðlaununum og er ég ekki vitund svekktur út í hann. Enda kaus ég hann. Hér mættu fleiri vera jafn sniðugir og Huxi. xT
Andþór er skemmtilegur karl, sem réði leikara með lokaðan munn til að mæta á árshátíðina.
Regína er ákaflega notaleg í viðmóti.
Nermal hefur þægilega nærveru.
Regína hefur ægilega fjarveru.
Texi Everto er lofaður.
Útvarpsstjóri er fyrstur með fréttirnar.
Dula er sjarmatröll Baggalúts.
Tigra hefði svo sannarlega átt skilið að vera kosin dama ársins. (Munaði nema tveimur atkvæðum á okkur?)
Regína er skemmtileg (það litla sem ég spjallaði við hana) og hefur einstakliega brosandi framkomu.
Ívar er algjör ljósapera.
Altmuligmanden er eins og tvöfalt skrúfjárn - sterkur og góður.
Tigra hefði svo sannarlega átt skilið að vera kosin dama ársins. (Munaði nema tveimur atkvæðum á okkur?)
Nei góða besta. Þú ert miklu meiri dama en ég verð nokkurntíman. Ég er svo groddaraleg!
blóðugt er annars töff. Ef ég væri ekki sátt með mig eins og ég er, myndi ég vilja vera eins og blóðugt.