Kæru félagar og vinir.
Ég leita enn liðsinnis ykkar til þess að yrkja afmælisvísur ...
Lýsingin á afmælisbarninu var tekin út eftir afmælisdaginn þar sem hún var allnákvæm og hugsuð einungis fyrir þetta eina tilefni. Þakka þeim sem liðsinntu mér.
Eitt sinn vann ég með einum Erni. Þegar við lentum einu sinni í vísnakeppni vann ég hann með eftirfarandi:
Helstu vörn gegn veikinni
vill hann Örn ei nota.
Tekur hann törn á steikinni
tekst í görn að pota.
(Já, ég veit að það er stuðlavilla í botninum, en þetta var nú fyrir löngu.)
Hér eru greinilega slæmar ritstíflurHleypur til og sækir öflugasta stífluleysinn í eiturefnaskápinn. Er Billi bilaði virkilega eini öryrkinn hér???[s]Klórar sér í höfðinu
Mér dettur í hug að við notum Guttavísur sem lagboða og kem með fyrstu vísuna:
Þrítugur er Öddi orðinn,
aldurinn ber nokkuð vel,
þó aukist hafi fituforðinn,
þá flottan hann ég tel.
Prófa að bæta við.....
ákveðinn og æstur reynist þá
ætlar ekki skoðunum
að hoppa til og frá
Mömmu sinni húmorinn er hjá
hús vandar að mála (eitthvað er þessi lína úr takti)
bæði matt og gljá
Ek skal reyna...
Afmælisbarn að harma höfum vér
hoppum og gleðjumst í veislunni hér.
Sturlumst og drekkum okkur öll full
aldrei skal ég þó hugs' um þetta bull!