Til dæmis.
Úti er rok og vindur hvass
belgingur í hviðum,
ég verð bráðum fitu hjass
og viðheld gömlum siðum.
Siðaðir við sullum kvæði,
aldnir drykkjumenn,
öfugt gerða bragarfræði
kunnum við hér enn.
Áður var hér önnur vísa,
eytt nú henni hefur verið.
Höfundurinn vill ey hýsa
óhefðbundinn skáldskapinn.
Skáldajöfrar hér umm slóðir
skáld ei eru af gömlum sið,
titrandi og göngumóðir
ropandi og reka við.
Hvalur syndir fiska best
fullur oft á tíðum,
aldrei þarf að fá sér prest
né smala fé úr hlíðum.
Gamla jónfrú Gyðríður
göttótt er að neðan,
karl hennar er ófríður
og visinn hefur reðan.
Hreint er loft og lækur tær
löng er orðin vakan,
komdu snöggvast mæta mær
mögnuð verður stakan.
Loft er þungt og þævings snjór
þörf á vinnu tækjum,
vegur þröngur malar mjór
mældur af Dönskum skækjum.
Hversu yndisleg er veröldin,
Ég breiði út faðminn víða.
Mjúkan kossablær á kvöldin,
Ég finn ei tímann frá þér líða.
Ástarblossar bak við tjöldin ,
Í svala skuggans, ég mun bíða.
klettar blautir við sjávaröldin,
við kofa minn ég mun ríma.
Ástarljóð nú er við völdin.
Græneygð mögnuð myndarleg
mærin fagra blíða,
hún er ung og unaðsleg
Unnur með lokka síða.
Hér koma þrjár bulluvísur
undir laginu, Stóð ég út í tunglsljósi.
Stóð mér út í tunglsljósi
stóð mér út í skóg,
ekkert var af skvýsunum
af apaynjum nóg
Ein kurrandi kom til mín
og út að eyrum hló,
með fimum apa fingrum
hún niður um mig dró.
Ég veltist lengi í vava
hvernig bregðast ætti við
svo ég tók hana bara aftan frá
svona af gömlum og góðum sið.
Bragfræði má brjóta hér
bramla hana og beyja
Má ég vísu bjóða þér?
Eða á ég barað þegja?
Velkomimnn á þráðin hér
Nermal lokka prúpi,
þetta var nokkuð gott hjá þér
þú ert enginn lúði.
Þakka fyrir þennan þráð
Þessi hentar nokkuð vel
þeim sem ei hafa ljóðanáð
Núna skríð ég út úr skel
Gaman veður já umm jólinn
jötnar mæta þá og tröll,
göngum hljótt um byggðu bólin
bæta skulum okkur öll!
Jóla barn í heim var borið
bæt'á fyrir okkar synd,
mildi kærleik,von um vorið
væn og björt sú helga mynd.
Senn er liðið þettað ár
upp mun annað rísa.
Orðinn er í kveðskap klár
kætir þessi vísa.
.
Hvernig á að semja ljóð,
svo af því verði sómi.
Heilla með því fagurt fljóð,
svo ekki virðist dóni.
Hvernig á að temja sprund,
með mikinn yndisþokka.
Boðana á ástarfund,
svo hana megi lokka.
Hvernig má ég gera ljóst,
svo ekki valdi sinni.
Að strjúka vilji hennar brjóst,
og sofna með hann inni.
Getur einhver svarað mér.
þó ekki í einni bendu,
Ég skal reyna að læra af þér,
og gera betri hendu.
Þú þarft ekkert annað
en geta bara sannað
að hún sé sú eina
sem þú vilt við reyna
og þá er ekkert lengur bannað
Gvöööð minn góður....leirburður ársins komin á blað.
Á síðunni byrtist bráðfalleg mær
brosandi ljóðlínur pikkar hér inn.
Orðin þau flæða titrandi tær
töluð frá hjartanu, ljúfurinn minn.
Hér er kominn ágætis drengur
siðprúður og mikill fengur
en vandinn er
að kappinn er
grennri en skósins þvengur
Á síðunni byrtist bráðfalleg mær
brosandi ljóðlínur pikkar hér inn.
Orðin þau flæða titrandi tær
töluð frá hjartanu í þráðinn minn.
Heyrðu lappi, þetta er á þræðinum "ort án stuðla"