Einfaldast er að öll eintökin svari. Síðan geta gestir skemmt sjer við að finna meðalsvar.
Eftir enduropnun hefur tvennt furðulegt gerst. a) Lyklarnir mínir eru horfnir og b) Ég er titlaður óbreyttur gestur... heimur versnandi fer!
Slæmt mál... það veitir ekki af því að hafa fleiri friðargæsluliða, því ég hef ekki tíma til að standa í þessu alla daga...
Held að það megi ekki skipta sér af kvæðum nýskráðra of fljótt. Ekki fyrr en eftir 10. kvæði og mjög varlega. Mér brá svoldið við fyrstu athugasemdina og var viku að jafna mig og átta mig að það væri mér fyrir bestu að fá leiðsögn í stuðlafræðum.
Já... Lopi... við reynum að vera ekki of hastir við nýliða... en stundum erum við illa upplagðir...
Ég fékk mjög góða leiðsögn þegar ég var nýliði og fóru þeir mjög mjúkum höndum um mig drengirnir á skáldskaparþráðunum. Ég fagna þessu snupri. Öllum getur orðið á og þá þarf einhver að vera á staðnum sem getur bent tilvonandi hagyrðingum á villurnar. Gestapó á jú að vera fágað samfélag þar sem fólk veður ekki uppi með vitleysu.
Því meira snupr, því betra.
Ég fagna snupri og ég lærði helling af því. Hvort ég treysti mér til að standa í gæslusveit er hinsvegar annar kapítuli. Afleysingar eru þó mögulegar.
Ég hefði viljað að þessar umræður færu fram í bundnu máli. Klórar sér í höfðinu
Það er aldrei of mikið af snupri og skömmum og um að gera að láta nýliðana heyra það strax.
Það er aldrei of mikið af snurpi fyrir nýgræðinga í kveðskap eins og mig. Mér finnst töff að fá snurp, því þá veit ég að einhver hefur lesið
Snurp hljómar hálfdónalega.
Ó ó snupr heitir það Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Þú gerir alldrei mistök Gimlé minn... ég aftur á móti geri hrikaleg mistök, beygi orð vitlausur og gleymi stuðlum og rími... ég er mjög skeikull... á auðveldara með að gagnrýna en hitt... en gaman að fá að vera á sama lista og snillingarnir... Skál
Það er snurpað á síld- og loðnuveiðum. Ekkert dónalegt við það.
Öllu heldur á nótaveiðum Haraldur. Amk er lítið snurpað á reknetum og flottrolli. Taktu þessu bara sem snupri.....