Er nokkurn tíman nokkuð að frétta?
Fer það ekki eftir því hvað manni sjálfum finnst?
Má manni finnast eitthvað sjálfum?
Er sjálfinu sjálfrátt?
Er ekki kominn fótaferðatími?
Er ég ekki nýsofnaður?
Dreymir þig hér inni?
Er þetta ekki draumur? Klípur sig í bústnar kinnarnar
Er ég þá búinn að lifa í draumi í öll þessi ár?
Hefur mig dreymt lífið í öll þessi óteljandi andartök?
Er Dallas draumur?
Er það ekki vökudraumur?
Ég?