— GESTAPÓ —
Útrýmum spartakistum.
» Gestapó   » Baggalútía
     1, 2  
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Úlfamaðurinn 11/10/06 20:53

Halló,

Ég læt þetta verða síðasta innleggið í dag. Ég er að læra um spartakista í tímum í listasögunni og tel að það eigi að útrýma þeim í Þýskalandi hið snarasta séu einhverjir þeirra til ennþá. Spartakistarnir steyptu keisaranum af stóli og ef einhverjir þeirra væru staddir hér á landi væri stórhætta á að þeir gætu gert hið sama við okkur á Baggalútnum. Það myndi litlu máli skipta ef spartverji myrti mig með silfurkúlu en vei sé baggalútíska heimsveldinu ef þeir kæmust að tilvist okkar, því að þá myndu þeir steypa afganginum af okkur af stóli. Af því má aldrei verða svo að ég ákvað að hafa síðasta innlegg mitt um þessa öfgamenn svo að hægt sé að gera ráðstafanir í þeirra garð. Ef við Íslendingar ætlum okkur að hafa her og ráðast á Færeyjar til að verja kóbaltsnámur okkar sem ég styð ekki, þá getur verið að við þurfum líka að snúa spjótum okkar að Þýskalandi og biðja Interpol um að athuga hvort að til séu nokkuð enn þann dag í dag spartakistar.

Lengi lifi Vigdís Finnbogadóttir!

Úlfamaðurinn
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Dula 11/10/06 21:30

Ertu þá hættur í dag?

Kosta og kynjamálaráðherra Baggalútíu. •  Forsetafrú, líka PRINSESSA og settur heilbrigðismálaráðherra (skv ráðherra og embættismannalista baggalútíu ) •  Gestgjafi Duludjammsins. • 22. kast er mitt !
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Herbjörn Hafralóns 11/10/06 22:22

Ég hélt að Úlfamaðurinn ætlaði að finna sér annan vettvang fyrir skrif sín, ‹Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann›

Verðlaunaður séntilmaður. HEIMSMEISTARI í teningakasti 2007 og 2008. BLÁR.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
blóðugt 11/10/06 22:23

‹Dæsir mæðulega með Herbirni›

Hjarta skal mér Högna í hendi liggja blóðugt, ór brjósti skorit balldriða saxi slíðrbeitu syni þjóðans.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Þarfagreinir 11/10/06 22:30

Hann ætlaði að gera það, en svo hætti hann við. Eins og venjulega.

Greifinn af Þarfaþingi • Fullur símamálaráðherra • Yfiryfirheyrslumeistari Rannsóknarréttar Skoffínsins • Sjálfskipaður últraséntilmaður og öðlingur
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vímus 12/10/06 03:41

Hvað geyma menn annars í þessum spartakistum?

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Úlfamaðurinn 12/10/06 09:00

Spartakisma!!

Úlfamaðurinn
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Don De Vito 12/10/06 15:44

‹Sér tilvalda ástæðu til þess að fara í stríð› Já, bið skulum sko ofsækja þessa, hvað var það... Spartverjista eða þá þarna. Þeir eru að ganga af öllu dauðu sem þeir koma nálægt og það gengur ekki!!!

Hvað sagðiru, Þýskaland? ‹Kallar allar hersveitirnar í Frakklandi að landamærunum›

Doninn • Stríðsmangari Baggalútíska Heimsveldisins • Innflytjendamálaráðherra, maðurinn með stimpilinn • Settur forstjóri HSHB • Stórlax
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vímus 12/10/06 16:12

Úlfamaðurinn mælti:

Spartakisma!!

Ég kannast hreinlega ekkrt við þessa tegund.
Er þetta skylt lyfinu sparine sem er raun promazine sem er þó ekki sama og clorproazine.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Úlfamaðurinn 13/10/06 13:01

Dúddi; Laukrétt, Þýskaland, betur þekkt sem Germanía í bókunum um Ástrík og Steinrík.

Til Vímusar; nei, ekki er um geðlyf að ræða, heldur raunverulegar persónur. Veit ég ekki enn nógu mikið sem stendur til að geta mér til um hvort að heimildir um þá séu 100% áreiðanlegar, sem sýnir og sannar hversu stórhættulegir, stórlega varasamir um sig og leyniþegir þeir geta verið.

Úlfamaðurinn
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vímus 13/10/06 20:15

Ég er búinn að komast að sannleikanum. Ég hringdi í vin minn Lalla johns og hann var með svarið á hreinu.
Lalli sagði: Spartakistar eru aumingjar sem við íbúar Litla-Hrauns fyrirlítum. Það eru smákrimmar sem stela bara einstöku sinnum, eiginlega svona sparibísar Orðið er svona samsett. Spar-tak-istar. Djöfuls krypplingar og letihaugar sem spara hvern andadrátt, hvað þá handtak, svaraði Lalli og bauð mér í nös.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Offari 13/10/06 20:17

Hefur þú sambönd við undirheima Reykjavíkur?

KauBfélagsstjórinn.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Upprifinn 13/10/06 21:33

Vita ekki allir að Vímus er undirheimar Reykjavíkur.

Ríkissáttasemjari Baggalútíska heimsveldisins. Vonbiðill hinnar keisaralegu hátignar, hirðskáld og varavaravarakeisari. Níðskáld hinnar konunglegu hirðar. Nánast óþægilega kurteis...Besserwisser og Negradýrkari.‹Ljómar upp.›
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Siggi 13/10/06 21:36

Útrýmum Vímusi og lögleiðum.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
dordingull 13/10/06 21:41

Þar kom Offari uppum sig!. Fávís Framsóknarmaður HA HA HA ... NEI, svona vitlaus er engin!

Þú er pottþétt pokarotta frá Tasmaníu græneðlan þín. Eina spendýr sólkerfana sem veit ekki að undirheimar eru aðeins hluti af undraheimum Vímusar og án hans fræðilega óhugsandi. Hefur þú sambööö..... ‹Arrrrrrrrrgar af hlátri.›

Köngulóarapakonungsríkisarftakinn.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Offari 13/10/06 21:46

Svona svona ég veit þetta núna, hvað um það að ég viti ekkert lengur um undirheimana, það er svo langt síðan ég kom upp á yfirborðið.

KauBfélagsstjórinn.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Ísdrottningin 13/10/06 21:51

dordingull mælti:

Þar kom Offari uppum sig!. Fávís Framsóknarmaður HA HA HA ... NEI, svona vitlaus er engin!

Þú er pottþétt pokarotta frá Tasmaníu græneðlan þín. Eina spendýr sólkerfana sem veit ekki að undirheimar eru aðeins hluti af undraheimum Vímusar og án hans fræðilega óhugsandi. Hefur þú sambööö..... ‹Arrrrrrrrrgar af hlátri.›

Uss, ekki láta svona þó að það villist hér inn landsbyggðarfólk. Það er til byggð utan Reykjavíkur.

-Já það er sko margt skrýtið í kýrhausnum - Æðstastrympa - Höfundur skálarinnar - Hálendismálaráðherra -
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Offari 13/10/06 21:53

Sú byggð er að mestu án undirheima.‹Ljómar upp›

KauBfélagsstjórinn.
LOKAÐ
     1, 2  
» Gestapó   » Baggalútía   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: