Halló,
Ég læt þetta verða síðasta innleggið í dag. Ég er að læra um spartakista í tímum í listasögunni og tel að það eigi að útrýma þeim í Þýskalandi hið snarasta séu einhverjir þeirra til ennþá. Spartakistarnir steyptu keisaranum af stóli og ef einhverjir þeirra væru staddir hér á landi væri stórhætta á að þeir gætu gert hið sama við okkur á Baggalútnum. Það myndi litlu máli skipta ef spartverji myrti mig með silfurkúlu en vei sé baggalútíska heimsveldinu ef þeir kæmust að tilvist okkar, því að þá myndu þeir steypa afganginum af okkur af stóli. Af því má aldrei verða svo að ég ákvað að hafa síðasta innlegg mitt um þessa öfgamenn svo að hægt sé að gera ráðstafanir í þeirra garð. Ef við Íslendingar ætlum okkur að hafa her og ráðast á Færeyjar til að verja kóbaltsnámur okkar sem ég styð ekki, þá getur verið að við þurfum líka að snúa spjótum okkar að Þýskalandi og biðja Interpol um að athuga hvort að til séu nokkuð enn þann dag í dag spartakistar.
Lengi lifi Vigdís Finnbogadóttir!
Ertu þá hættur í dag?
Ég hélt að Úlfamaðurinn ætlaði að finna sér annan vettvang fyrir skrif sín, Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Dæsir mæðulega með Herbirni
Hann ætlaði að gera það, en svo hætti hann við. Eins og venjulega.
Sér tilvalda ástæðu til þess að fara í stríð Já, bið skulum sko ofsækja þessa, hvað var það... Spartverjista eða þá þarna. Þeir eru að ganga af öllu dauðu sem þeir koma nálægt og það gengur ekki!!!
Hvað sagðiru, Þýskaland? Kallar allar hersveitirnar í Frakklandi að landamærunum
Spartakisma!!
Ég kannast hreinlega ekkrt við þessa tegund.
Er þetta skylt lyfinu sparine sem er raun promazine sem er þó ekki sama og clorproazine.
Dúddi; Laukrétt, Þýskaland, betur þekkt sem Germanía í bókunum um Ástrík og Steinrík.
Til Vímusar; nei, ekki er um geðlyf að ræða, heldur raunverulegar persónur. Veit ég ekki enn nógu mikið sem stendur til að geta mér til um hvort að heimildir um þá séu 100% áreiðanlegar, sem sýnir og sannar hversu stórhættulegir, stórlega varasamir um sig og leyniþegir þeir geta verið.
Ég er búinn að komast að sannleikanum. Ég hringdi í vin minn Lalla johns og hann var með svarið á hreinu.
Lalli sagði: Spartakistar eru aumingjar sem við íbúar Litla-Hrauns fyrirlítum. Það eru smákrimmar sem stela bara einstöku sinnum, eiginlega svona sparibísar Orðið er svona samsett. Spar-tak-istar. Djöfuls krypplingar og letihaugar sem spara hvern andadrátt, hvað þá handtak, svaraði Lalli og bauð mér í nös.
Vita ekki allir að Vímus er undirheimar Reykjavíkur.
Þar kom Offari uppum sig!. Fávís Framsóknarmaður HA HA HA ... NEI, svona vitlaus er engin!
Þú er pottþétt pokarotta frá Tasmaníu græneðlan þín. Eina spendýr sólkerfana sem veit ekki að undirheimar eru aðeins hluti af undraheimum Vímusar og án hans fræðilega óhugsandi. Hefur þú sambööö..... Arrrrrrrrrgar af hlátri.
Svona svona ég veit þetta núna, hvað um það að ég viti ekkert lengur um undirheimana, það er svo langt síðan ég kom upp á yfirborðið.
Þar kom Offari uppum sig!. Fávís Framsóknarmaður HA HA HA ... NEI, svona vitlaus er engin!
Þú er pottþétt pokarotta frá Tasmaníu græneðlan þín. Eina spendýr sólkerfana sem veit ekki að undirheimar eru aðeins hluti af undraheimum Vímusar og án hans fræðilega óhugsandi. Hefur þú sambööö..... Arrrrrrrrrgar af hlátri.
Uss, ekki láta svona þó að það villist hér inn landsbyggðarfólk. Það er til byggð utan Reykjavíkur.