Fimmtán ær og hrútur hár
hárfín ull, samt nokkuð grár
grár í sinni espist ótt
óttaleg er jólanótt
Jólanæturkreppukvöl
kvöl sem núna á sér dvöl
Dvölin kvelur þessa þjóð
þjóð sem nú á engan sjóð.
Sjóðirnir á bak & brott;
brottnám það var heljarplott.
Plottið núna: Færum fórn,
fórnum vorri ríkisstjórn.
Ríkisstjórnin virðist vilt
vilt af græðgi orðin spillt
spillt svo nú ég gerist grænn
grænn nú Steini virðist vænn.
Vænsti klárinn geysist greitt,
greitt um landið, vítt og breitt.
Breyttist veðrið - rok varð regn -
regnið gerðist merkisfregn.
Fregnaregnið svoldið súrt
súrt og úldið jafnvel klúrt.
Klúr og spillt er þessi þjóð
þjóðin sér nú viðurbjóð
Viðurbjóður í ólgu óð
óð er mærin býsna góð,
góður sínum tippa tróð
tróðan rak upp frygðarhljóð.
...of seinn
Bjóð úr frosti tíu tók
tók og upp á pallinn skók
skókvikindið þröngt og þvalt
þvalt það gerði allt svo kalt
Kalt er nú á fjöllum fimm
fimm er klukkan orðin,
orðin eru gríðar grimm.
grimm er hringar skorðin.
Ekki réttur bragarháttur hjá lappa.
Hljóðnar seint í barnabekk,
bekkjast krakkar, reyna hrekk.
Hrekkjalómar blöðru blá
blása, og hún springur þá.
Þá er mættur Gunni Gunn.
Gunni, með sinn stóra munn.
Munnurinn talar hægt og hratt -
hratt ef lýgur: Slétt er bratt!
Bratta hlíðin mæðir mig
myglar fótur og ilsig
sigli ég þó mæðu'í mót
mót og spor fær snjór við fót.
Þetta er á mörkunum að vera klifað... læt ykkur ráða því.
Þetta var alveg nógu klifað
Fætur mínir troða troð,
troðinn snjó og snjóvgað hnoð.
Hnoða síðan ótt og ótt
ótt og títt langt fram á nótt.
Nóttin hellist dimm og dökk
dökkleit vera gerist frökk
frökk hún kroppar gluggan grimmt
grimmt er allt þá verður dimmt.
Dimman grúfir, luraleg,
legstað yfir. Þar er ég.
Ég er dauður, einsog er.
Erfidrykk nú býð ég þér.
Þú átt stað í minni mér.
Mér við hlið þinn andi er.
Er þú hvarfst mér - fórst mér frá,
frábæran vin ég missti þá.
Þá er nokkuð algengt orð.
Orðlaus fiskur hefur sporð.
Sporðaköstin sjást á sjó.
Sjóveik fram af bryggju spjó.
Spjótin beinast að mér enn.
Enni hafa vitrir menn.
Menningin er útum allt.
Alltaf skal mér verða kalt.