Perur margar skína skært,
skært þær lýsa og angurvært.
Vært ég svaf á vaktinni,
vaktinni lauk í dragtinni.
Sleppur þetta?
[Varla... strangt til tekið þarf að byrja næstu línu á nákvæmlega sama orði og síðasta endaði... til að fá þessa klifuðu stemmningu... Skabbi]
Perumauk er soldið soft
softvöru með gleypi loft.
Lofti veldur þarma þraut
þrautin sú víst klósett braut.
Brautarstöðin fylltist fljótt,
fljótt hún tæmdist aftur hljótt.
Hljótt af stað þá lestin leið,
leiðin var þá orðin greið.
Greiðsluþrot er bölvað böl
bölvun sú er fjandans kvöl
kvöld eitt víxil feitan fann
fann er svitinn kaldur rann.
Rann úr mínum iðrum allt,
allt varð tómt og dimmt og kalt.
Kalin er á hægra hné,
hné ég niður, þvílíkt spé.
Spé og grín er blútsins bölvun.
Byggir allt á dóp'og ölvun.
Væri ekki veröld fegri
væru allir alvarlegri?
Ljómandi vísa, en ekki klifuð hjá Fíflagangi.
Verð að redda þessu seinna, er að fara á fund.
Nennir einhver að bjarga þræðinum fyrir mig?
Spé og grín er blútsins bölvun.
Byggir allt á dóp'og ölvun.
Væri ekki veröld fegri
væru allir alvarlegri?
Spé og grín er blútsins böl
böl er alltaf dóp og öl
ölið bætir veröld vit
vit er samt víst fjandans strit.
Spé er mjög oft unun að,
aðeins bætir hróður stað.
Staðfastlega´ er gaman grín,
grínlaus þessi´ er vísa mín.
Strit finnst mörgum leiðinlegt,
leg má teljast svipað trekt.
Trekkur var í húsum hér,
héraskinnið forðar sér.
Sérfræðingur tekur tól,
tólin bindur föst með ól.
Ólmast fórnarlambið - laust,
lausnar baðst það nú í haust.
Haustið kemur frost þá fer
fer að kom'um nætur hér
Hér þá verður svaka svalt
svalt þá finnst mér mjög svo kalt.
Kalt er nefnilega nú.
Nú er kuldaleg mín frú.
Frúin bara segir stopp.
Stoppar káf á sínum kropp.
Nú er ég hræddur um að Skabbi skammi Fíflaganginn fyrir mörg afbrot.
Nú er ég hræddur um að Skabbi skammi Fíflaganginn fyrir mörg afbrot.
Æji ég nenni því ekki í dag... það er flöskudagur... stökkvið bara yfir hann fyrir lágstuðlavillu og gnýstuðlavillu...
Kalt er mér á hægri hönd.
Höndla kaupmenn út um lönd.
Löndum þorski í heimahöfn.
Höfnum því að fyllist söfn.