Allt í lagi krakka ormur ég skal þá kyssa á bágtið. Þetta ætti samt að kenna þér að börn eigi ekki að leika sér að hnífum.
Starir þegjandi út í loftið en grípur svo fyrir augun
Þetta verður ekki fallegt.
Gefur Hvæsa eðalkokkahnífasett úr mjúku plasti
Kemur inn
Sér útréttan puttann
Setur upp gasgrímu
Eh, hérna, ég er líka nýliði. Hvað þarf ég að vera nýliði lengi?
Þangað til við ákveðum annað! Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er
En mig langar að hætta að vera nýliði. Mig langar líka að fá mynd. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Getur valið þér mynd þegar þú ert komin með 10 pósta...
Ég prófaði en það er bara ein mynd af einhverjum bleikum gleraugnaglámi. Það hefur kannski ekki verið fullljóst, en ég er ekki bleikur gleraugnaglámur. Ég er Jóhanna á bálinu!
Ritstjórnin er ansi löt við að smíða nýjar myndir þannig að þú verður sennilega að bíða eitthvað með að fá mynd...
Best er að hafa samband við ritstjórn Baggalúts vegna þessa vandamáls, þ.e. Enter. Ritstjórnin virðist reyndar sjerlega önnum kafin þessar vikurnar.
En mig langar að hætta að vera nýliði. Mig langar líka að fá mynd. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Þú verður að sætta þig við að vera nýliði þangað til það er komið inn nægilegt magn af öðrum nýliðum sem eru þá nýliðar í staðin.
Ef Enter skyldi ákveða að loka fyrir nýskráningar, þá værir þú föst sem nýliði að eilífu.
Ekki getum við verið nýliðalaus hm?
Halló.
Er þetta góður staður til þess að kynna sig?
Jæja, ég heiti í það minnst Ferskja og hef verið að fylgjast með í nokkra daga. Ákvað að lokum að skrá mig bara inn. Hvað er það versta sem gæti gerst.
Hlakka til að læra betur á allt saman og kynnast ykkur betur.
Fæ ég að rúlla í gegn um hliðið?
Velkomin Ferskja. Passaðu þig samt þetta getur verið ávanabindandi.
Vertu hjartanlega velkomin Ferskja.
Vinsamlegast stígðu í þennan tjörupoll og veltu þér upp úr honum. Fjaðrirnar eru á leiðinni.
Það versta sem gæti gerst? Þú varðst auðvitað að spyrja! Skrifar stórt N á ennið á nýliðanum, ristir upp stóra dúnsæng og stráir yfir Bíddu svo aðeins, það kemur einhver og hleypir þér í gegnum hliðið bráðum...
Þakka þér fyrir Offari. Já er það ekki bara ágætt? Mig vantar nýtt hobbý nefninlega.