Vímus er nú algjör perla, alltaf boðinn og búinn til að leggja fram þekkingu sína öðrum til góða. Jafnvel heilu efnameðferðirnar ef þörf er á. Við hin sem komumst ekki með hælana upp þar sem hann hefur tærnar (í sjöunda himni vænti ég) getum ekki annað en dýrkað drenginn.
En í fyrirsögn þráðarins er einungis eitt T í orðinu eitthvað, það mætti laga.
Ísdrottningin er alltaf boðin og búin að leiðrétta og gagnrýna svo að sómi sé að. Hún kann þá list að benda góðfúslega á það sem betur má fara og missir sig aldrei í skítkast og leiðindi. Skál fyrir Ísu!
Hexia de Trix er um það bil æðislegasta öndin sem hefur stigið fæti hingað inn fyrir dyr, hún sér okkur fyrir dýrindiskakói, skemmtir okkur með galdralátum og er alltaf svo jákvæð og skemmtileg. Hún á skilið stórt knús frá öllum!
Hlebbi er fallega grængulur á lit og duglegur að reita ástmann minn til reiði Flissar
Laufblaðið er djús.Glottir
Rauðbjörn hefur stofnað frábæran þráð sem ég spái vinsældum.
Ríkisarfinn er einstaklega naskur í hinum ýmsu leikjum, fyrir það fær hann koss á skallann... Kyssir skallann
Skabbi er orðhagur, sérstaklega þegar hann mælir í bundnu máli. Svo hefur hann mjög ríka réttlætiskennd og er mikill aðdáandi snillingsins Dylan.
Þarfagreinir er mikil kall. Svo er hann svo gáfaður.
Myrkur er skemmtilegur karakter og kemur sífellt á óvart með tilsvörum sínum.
Galdrameistarinn er hress og rammgöldróttur drykkjurútur (slíkt telst jákvætt hjer).
ER ÉG DJÚS?
Allavegana, Hlebbi er duglegur að skrifa lofræður um sína fellóv gestapóa og fyrir það mætti hann allveg fá kaffibolla.
Litla laufblað er epladjús?
Nei nei. Litla laufblað sér alltaf eitthvað gott við flesta og það setur hana í toppin í minni bók.
Myrkur rokkar feitt Slammar
Bjúving er mikill ljúflingur og afbragsðgóður spámaður.
Þarfagreinir er langbestur... einfalt mál...