Þið munið eftir þessum leik, vænti ég. Hér á að koma með fullyrðingar sem hægt er að svara með annaðhvort "akkúrat" eða "víst". Ef einhver leikmaður kemur með fullyrðingu sem ekki stenzt kröfur treysti ég öðrum leikmönnum til að hoppa yfir innlegg hans. Öll innlegg skulu enda á upphrópunarmerki
Þá byrja ég:
Þessi leikur er ekkert skemmtilegur!
Víst!
Hann er ekki verri en hver annar!
Akkúrat !
Orðið 'akkúrat' er ekkert óæðra orðinu 'víst' þó það sje sletta !
Akkúrat!
Það skiptir raunar ekki máli hvurnig menn eru máli farnir!
Víst!
Það má ekki sofna á verðinum!
Akkúrat!
Við látum ekki deigann síga!
Akkúrat!
Það er ekki mikið varið í koníak!
Akkúrat!
Rauðvín er miklu betra!
Eh... akkúrat?
Það vantaði ekkert neitun í fullyrðingu Rósarinnar!
Víst!
Mistök eru ekkert til að læra af!
Víst !
Það er eigi góð hugmynd að banna öll mistök með lögum !
Akkúrat!
Það gera ekki margir sömu mistökin tvisvar!
Víst!
Það eru ekkert eðlilega margir sem eru bara vanvitar!
Akkúrat!
Bæjarins beztu eru ekkert bæjarins beztu!
Víst!
Bæjarins besti er ekkert bæjarins besti!