Samt er ég hissa á að enginn skuli minnast á Higgs - Boson frumeindina, sem er að sjálfsögðu ekki til. Vísindamenn hafa leitað að henni lengi og kallað hana frumeind Guðs. Ef þeir aðeins skildu að Guð væri einfaldlega alheimsandi eða alheimssál/meðvitund þá væri þetta allt í lagi. En þá myndi það líka þýða að forsendan fyrir trúarlegri eða mystiskri reynslu sé sú að hver sem er sama hverrar trúar hann er geti talað við Guð.
Það er þetta sem ég er að tala um. Horfið á þann sem titlar sig Úlfr. Úlfur alveg eins og ég! Ég velti fyrir hvaða úlfahjörð viðkomandi tilheyrir. Er þetta úlfamaðurinn sem þið voruð að tala um og allir voru að segja að væri svona mikið pirrandi?
Ekki voru allir að segja að þú værir pirrandi, Halli gamli fílar þig í botn.
Ég undirritaður lýsi hér með yfir að hugtakið íslenska, ´frumefni´skuli framvegis eiga við um eld, loft, vatn og Jörð, og ekki lengur ´frumefnalotuna´sem eftir það verður kölluð lota grundvallarbyggingareininga efnasambanda. Þetta á við um kóbalt sem og efni sem áður fyrr hafa verið kölluð ´frumefni´. Svo skil ég ekki eitt varðandi ´efnis´hyggju. Það er alltaf verið að tala um eitthvert eitt ´efni´í efnishyggjunni, t.d. ´tilurð, eiginleika og eðli efnisins´. Hvað eiga menn við? Það gleymdist víst að skilgreina efnið í fyrsta lagi!!!Köllum á Voffann og yfirheyrum hann!!
Flott er, notum frumefni yfir "frumefnin fjögur" við getum kallað hin prímefni þá
Ég heimta að blútur verði fimmta frumefnið !
Lemur í borðið
Viskí - það er eftirlætis frumefnið mitt.
Hellir Balvenie í glös
Skál!
Klárar úr sínu glasi og hellir Hardy XO í næsta umgang
Skál fylliraftarnir ykkar.
Stígur upp í pontu, hrystir saman blaðabunkann, ræskir sig
Kæru vinir,
áfengi er böl - drekkið kók
Stekkur úr pontunni í óðagoti, krafsast á öllum fjórum út um næstu hurð og skellir á eftir sér
Til Coca Cola
Þú þjáist greinilega af annað hvort skelfilegri sjálfsímynd eða að vera afar illa upplýstur einstaklingur. Muna allir eftir flúorárunum þegar flúoræðið mikla gekk um Evrópu? Þegar í ljós kom að nasistar hafi notað flúorinn til þess að heilaþvo fólk varð flúor allt í einu að nasistatákni sem öllum bæri að forðast en sem engin ríkisstjórn þorir að banna, enda myndi það þýða að þar með yrðu Bandaríkjamenn að viður-kenna hvort eð er að þeir hafi tapað síðari heimsstyrjöld. Hvað Kók varðar, þá er þessi drykkur sennilega unninn úr hráu dýrablóði og það úr mörgum dýrategundum, og alls kyns gumsi bætt í svo að hann verður svartur og blóðliturinn sést bara þegar sólin skín í gegnum flöskuna. Allir muna eftir þeirri þjóðsögu að hrossaflugan var sögð vera rauð, en hún er það samt í raun og veru alls ekki. Ekki eru til sykurlausir drykkir heldur. Í framtíðinni verður sala og dreifing á kóki eða flúor og öðrum eiturefnum álitin vera glæpur og þeir sem standa að baki henni hættulegir glæpamenn sem verða að öllum líkindum fangelsaðir og dregnir fyrir alþjóðlega dómstóla. Kókið mun fara sömu leið og síónisminn,
velkominn á Baggalútinn, og skrifaðu endilega meira, helst langar langlokur.
Uppáhaldsfrumeindin mín er svona á reiki en ég er veikur fyrir eðalgösunum og í dag held ég að hallist frekar að argoninu góða.... eða kannski xenoninu?! Ahhh fjandakornið! Nú væri gott að fá sér glas af eimuðum kolefnissamböndum. Ja hvur fjandinn... auðvitað er uppáhaldsfrumefnið mitt kolefni.
Eftirlætisfrumefnið mitt er sannleikurinn. Hann kemur á eftir kærleikanum í lotukerfinu. Gleðst yfir eigin ánægju
Ég get ekki gert upp á milli arseniks og thallíums.
Ætli hassium sé í uppáhaldi hjá Vímusi?
Kolefni - tvímælalaust! Úr því er hægt að gera svo margt, bæði fallegt, gagnlegt og hættulegt!
Uppáhalds frumefnið mitt er calsium.