Þetta er þráður vikunnar að þessu sinni… eins og segir í fyrsta innlegginu:
Hér ætlum við að henda fram illa ortum vísum. Ég kem með fyrripart og einhver annar botnar og kemur jafnframt með annan fyrripart.
Heldur vil ég lifa hátt
hossa mér og kætast
En höldum áfram með þráðinn:
Köttur feitur kúrir hér
Kafloðinn á skrokkinn
Blandar saman kók og smér
og klórar grimma kokkinn.
Alldrei yrki illa ég
enda snillingsséni
Alldrei yrki illa ég
enda snillingsséni
og fæst þau voru um farinn veg
framsetningu klén í.
Rímorð erfið eigast mér
í enda hverrar línu.
Rímorð erfið eigast mér
í enda hverrar línu.
Þess vegna því stundum vjer
viljum slíku sleppa.
Leyndardóma þessa þráðar
þegja ber um um sinn.
Leyndardóma þessa þráðar
þegja ber um um sinn.
Skjóðu frá leyst þó vonbráðar
fær þó forsetinn.
---------------------------------
Klaufaskapur stuðlasljór
sparar stafinn höfuðs
Klaufaskapur stuðlasljór
sparar stafinn höfuðs
Stafur stuðla stendur stór
stöndugur og stundar hór
Meðaltalið stuðla hefur
jafnast nokkuð út.
Meðaltalið stuðla hefur
jafnast nokkuð út.
Yfir landið snjóinn skefur
skaltu nokkuð út?
Höfuðstafinn hafðu rétt
einhverstaðar hérna
Höfuðstafinn hafðu rétt
einhverstaðar hérna,
hann er einsog skæslegt sett
bleikra lampaskerma.
---------------------------------
Veðrið vitlaust úti blæs
hríðarvindar gnauða
Höfuðstafinn hafðu rétt
einhverstaðar hérna
Þú hárrétt hefur stuðul sett
sem stuðlavísa Erna.
Of Seinn
Veðrið vitlaust úti blæs
hríðarvindar gnauða
Kapteinninn þó sagði Ræs,
vinnum nú til dauða
Erfitt er að klikka hér
og yrkja hárrétt bara.
Erfitt er að klikka hér
og yrkja hárrétt bara.
Samt er gaman, þykir mér,
héðan ég aldrei vill fara.
Heyrðu snöggvast Skabbi minn
slyngi hagyrðingur:
Heyrðu snöggvast Skabbi minn
slyngi hagyrðingur:
Stuðlalaus ég ekkert finn
utan þessi hringur.
Gullöld kvæða gefst nú hér
og hnignun fjarri lagi.
Gullöld kvæða gefst nú hér
og hnignun fjarri lagi.
Viltu ekki vinur ,mér
taka nokkra slagi.
Slæmt er þettað tíðarfar
fennir allt á bólakaf,
Slæmt er þettað tíðarfar
fennir allt á bólakaf.
Núna neitum vjer að ríma,
ekki höfum til þess tíma.
Fyrri- þessi illa er
ortur -partur afar.
Fyrri- þessi illa er
ortur -partur afar
Botni vil ég bæta hér
betra gera málfar.
Jæja er ekki komið nóg af þessu kvæðarugli... sveiflar tennisspaðanum og þrusar þræðinum yfir á Almennt spall
Foj. Og ég sem ætlaði að fara að yrkja...
En hvað finnst ykkur, svona almennt séð, um spjall?
Ég get svo sem sveiflað þræðinum aftur yfir í Kveðist á í smá stund... ef Hexía vill...
Botna þetta kæra frú
enga stuðla notum.
Botna þetta kæra frú
enga stuðla notum.
Það vita bæði æra' og trú
að hvolpar koma úr gotum.
Ljómar af stolti yfir þessum agalega botni
Brilljant... við skulum frekar hafa vísindalega umræðu... Sveiflar spaðanum