Bendir niður
Málstofa sko - en þetta umræðuefni ætti að ganga hér, svosem.
Hefurðu séð Eldfluguna? Það eru góðir þættir. Bara verst að þeir voru bara 14. Síðan var lokað á þá. Bastarðar.
Ég hef ekki séð eldfluguna.
Ég er núna á fullu að skoða alla þættina af Húsi sem ég missti af.
Já... erum við komin í stofu málanna... áhugavert
Þetta þykir mér skemmtilegur þráður þrátt fyrir að hafa stofnað hann sjálfur...
Mér líka, og ekki stofnaði ég hann. Magnað.
OHOJ!
sveiflar sér og gerir þyrlu fullklæddur
Og aftur erum við orðin menningarleg.
Fær sér pípu og les New York Times
Leysir krossgátu
Ég var að klára bókina 2010, sem er framhald 2001, í gær. Hún fylgir þeirri fyrstu ágætlega eftir, en mér finnst hún eiginlega frekar tilgangslaus. 2001 var auðvitað svo mikil tímamótasnilld að flest annað fellur í skuggann.
Ég hef ekki tíma til að lesa annað en sálfræði þessa dagana... en það flokkast víst undir menntir.
kastar kveðju
Grípur kveðjuna
stelur kveðjunni
Stelur senunni
Ekki er þetta nú menningarlegt tal. Ég legg til að þessi þráður verði færður eitthvert annað ef hann á að fara út í svona vitleysu. Svona apalæti eiga heima í Sandkassanum.
Ohh Þarfi þú ert svo ómenningarlegur.
Þetta var auðvitað leikrænn spuni
Hristir hausinn yfir fávisku Þarfa
Ég fylgist ekki með svona nútímalist. Gefið mér þá frekar óperu eða ballet.