Það er gott að fara að sofa núna.
Það er gott að vakna í faðmlögum við manneskju sem manni þykir vænt um.
Það er gott að slaka á í góðum stól og klappa kettinum sínum, á meðan maður telur saman í huganum allt það góða sem manni hefur hlotnast í lífinu.
Það er gott að sofa
Hugsar um að leggjast aftur í rúmið
Það er gott að fá sér gott í kroppinn. Hef ég heyrt. Flautar sakleysislega
Þráðauppvakningar... alltaf skemmtilegt er einhver tekur sig til aog finnur gamla þræði.
Þráðauppvakningar... alltaf skemmtilegt er einhver tekur sig til aog finnur gamla þræði.
Mætti jafnvel segja að það sé gott. Mmmm Gefur frá sér vellíðunarstunu
Það er gott að fá sér gott í kroppinn. Hef ég heyrt. Flautar sakleysislega
Já.. ég heyrði það líka einhverstaðar. Klórar sér í höfðinu
Glottir eins og fífl
Gott? Anyone?
Svefninn oftast sætur er,
síðla mjög um nætur.
Að hunskast eftir, hentar mér,
hádegi á fætur.
Hangikjetið í IKEA er gott. Og ódýrt. Og nú eru jólin mín byrjuð. Skreytir hús með greinum brúnum
það er gott að vera inni í svona skítaveðri eins og er nú þegar þetta er ritað.
Gottast er að geta kíkt inn hér á lútinn öðruhvoru hjá góðvinum og meiga koma klæddur eins og ég er með vestfyrskan hreim og allt
Lífið er gott.
Reykt folaldakét er gott,helst með kartöflum og hvítum jafningi. Óralangt síðan ég hef snætt þannig