Hafði verið ákveðið fyrirfram að maðurinn ætti að hringja ?
Ég hef þetta... hann gat ekki sofnað vegna ónæðis frá símanum og þegar hann hringir þá tekur hann tólið af og leggur það til hliðar við símann til að verða ekki fyrir frekari truflunum. Þannig getur hann sofið til morguns og hæglega sofið yfir sig ef því er að skipta.
hélt eitthvað vöku fyrir manninum áður en hann hringdi símtalið (þ.e. eitthvað annað en tilhugsunin um símtalið)?
Var hávaði í nágrönnunum að pirra hann og hann hringdi til að þagga niður í þeim?
getur verið þetta tengist látum í nærliggjandi íbúð, eins og hávært kynlíf eða þessvegna hrotur nágrannans. Hann hringir í hann til að vekja hann leggur svo á og reynir að sofna áður en nágranninn sofnar??
Hann heyrði í vekjaraklukku í næstu íbúð sem hélt fyrir honum vöku. Eigandinn var ekkert að hafa fyrir því að vakna við vekjarann og því varð maðurinn að hringja í nágrannann til að vekja hann til að slökkt yrði á vekjaraklukkunni. Eftir það sofnaði hann eins og barn.[/s]
Tjah, þetta er voða skylt hinni eiginlegu lausn.
Sú finnst mér hins vegar svo skemmtileg að ég ætla að halda þessu opnu þangað til hún er alveg komin.
Gæti þetta verið næturvaktmaður sem sefur svo á daginn.
það er dúndrandi músík í nærliggjandi íbúð hann hringir í lögregluna til að kvarta. Seinna kemur hún svo á staðinn og hann getur þá sofið værum blundi.
hmmmmm.....skemmtileg lausn.....ekkert kynlíf....
....það hlýtur að vera fyllerí í gangi?
Neinei.
Og ég sem hélt að þetta væri komið...
Veltið aðeins fyrir ykkur hvað fór fram í símtalinu.