Hágöfuga dagbók:
Nú datt einhverjum íslenskum nema í því sem menn kalla "listir" í fjölbrautaskóla einum í Kanada það í hug að búa til svokallaða ekki-sprengju. Fyrirbrigðið er náskylt ýmsum öðrum hlutum, t.a.m. mjólkurfernu. Það er hinsvegar ólíkt flestum slíkum í því að þessi tiltekna ekki-sprengja leit út eins og sprengja. Hún var svo skilin eftir á svæði hvar margir Kanadamenn eru líklegir til að draga sig saman (polkadansmóti?) og tilkynnti neminn sérstaklega að ekki væri um sprengju að ræða. (Þetta var verkefni í skyldufaginu Happening 101).
Þetta er allt gott og blessað og mátti maðurinn gera þetta í friði fyrir hinum frjálslynda mér...
Ég get hinsvegar ekki annað en velt því fyrir mér hvernig viðbrögðin hefðu verið ef þetta hefði verið ekki-haglabyssa og listneminn hefði gengið inn í mannþvögu, upp að saklausri móður með barnavagn, miðað á hana og tilkynnt rólega að hann ætlaði ekki að skjóta af henni höfuðið.
Ég hef aldrei komist jafn nálægt því að fá inngöngu í Miles High klúbbinn og þegar ég kenndi mín nýlega á salerni Egilsstaðaflugvélarinnar. (Einstaklega glæsilegur rumpur flugfreyju var tilefnið.)
Kæra dagbók, er ég misheppnaður?
P.S. Ég er skotin í strák. Hann er voða valdamikill og sætur.
Stefáni Pálssyni?
Kæra dagbók. Nú verðum við að fara að taka á okkar málum. Við þekkjum næstum enga nátthrafna og enn færi -krákur. Það er bara eitt að gera og það er stórsókn!
Ps. hættu að læsa þér, ég nenni ekki að þvinga mér inn í þig í hvert skipti sem ég vil létta af mér. Ég á þig.
Gengur á dyr
Það er þó skárra en að ganga á hurð.
Dagbók!
Af hverju eru alltaf fengnir raunverulegir fréttaskýrendur til að leika sjálfa sig í íslensku sjónvarpsefni?! Hvaða pervertíska tilgangi þjónar þetta? Hver er ábyrgur?
Hrafn Gunnlaugsson. Ekki spurning.
Það er merkileg sjón sem blasir við Frónbúanum í sturtum sundlauganna. Varla sést hár á hreðjum nokkurs manns lengur! Mikið held ég nú að Laxness yrði ánægður. Eða var það ekki hann sem lagði þetta til í Almúgabók sinni?
... hvert heimili fái spegil og tannbursta. Og í gvuðs bænum bændur, snyrtið skapahárin oftar en á jólum!
Lagalegur fyrirvari: Halldór Laxness sagði hvorki þessi orð né svipuð (fyrir utan þetta með spegilinn). Ekki var hér reynt að vega að æru Halldórs, eftirlifandi fjölskyldu hans eða annarra Íslendinga. Ef kæra kemur upp vegna innleggs þessa skal málið höfðað fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Nah. Páll Óskar. Nema þetta með tannburstann, enda hefur hann frían aðgang að tannþræði.
Það er merkileg sjón sem blasir við Frónbúanum í sturtum sundlauganna. Varla sést hár á hreðjum nokkurs manns lengur! Mikið held ég nú að Laxness yrði ánægður. Eða var það ekki hann sem lagði þetta til í Almúgabók sinni?
... hvert heimili fái spegil og tannbursta. Og í gvuðs bænum bændur, snyrtið skapahárin oftar en á jólum!
Lagalegur fyrirvari: Halldór Laxness sagði hvorki þessi orð né svipuð (fyrir utan þetta með spegilinn). Ekki var hér reynt að vega að æru Halldórs, eftirlifandi fjölskyldu hans eða annarra Íslendinga. Ef kæra kemur upp vegna innleggs þessa skal málið höfðað fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Tekur virkan þátt í söfnun fyrir H. Hólmstein. Gefur herra Hólmsteini árituð verk Laxness.
Í dag ferðaðist ég fram í tímann til ársins 2015. Sá Saw XXIII - hún var ekki góð en skárri en ég bjóst við.