Lít ég niður feikna fall,
fuglakliður ómar.
Þar er friður fyrir kall
sem flegin iður gómar.
Faðir Rómar, Virgill vill,
vonda lóma eta.
Faðir Rómar, Virgill vill,
vonda lóma eta.
Marga dóma maður ill,
mönnum blóma seta. (mönnum blóma= samkynhneigðir menn)
Mikil dáð og mögnuð ráð,
margur spáð um getur.
Mikil dáð og mögnuð ráð,
margur spáð um getur.
rímum sáð og reis upp dáð
rann upp kláðavetur.
Einn á bar með ölglas tómt
oní starir maður .
Einn á bar með ölglas tómt
oní starir maður.
Er hann spar á orðið frómt
enda snarbilaður.
Holdanautið nú ég skaut
nárinn flaut í blóði.
Holdanautið nú ég skaut
nárinn flaut í blóði.
Nú er þraut að gera graut,
þá gat ég braut í stóði.
Taktu hendu hringsins því
hölt hún stendur ein.
Taktu hendu hringsins því
hölt hún stendur ein.
Henni sendum heillaský
og hækjulendabein
línum endalausum í
læt ei benda nein
þó hún endar ævi í
á, við strendur Maine.
Hvíti Baldur bitur má
bíta í skjaldarrendur
Hvíti Baldur bitur má
bíta í skjaldarrendur
í legutjaldi tekur á,
að taka gjaldalendur.
Fagurt ský í fjarska sést,
finn ég gnýinn nálgast.
Fagurt ský í fjarska sést,
finn ég gnýinn nálgast.
Þar að flýja finst mér best,
sjá fjallsins gýginn tálgast.
Drekka viskí vil ég oft,
og veita hyski líka.
Drekka viskí vil ég oft,
og veita hyski líka.
Eykur miska í þann hvoft
angans giska ríka.
Bið um forgang,birtir seint,
brauð á morgun etum.
Bið um forgang, birtir seint,
brauð á morgun etum.
Síðan dorgum hafið hreint,
á hafskipstorgum getum.
Allir hata Íslands þjóð,
einnig kratar bauna.
Allir hata Íslands þjóð,
einnig kratar bauna.
Vilja matast vort við blóð,
vart má batann launa.
Nú er búið næstum líf,
nú eru fúið húsið.
Nú er búið næstum líf,
nú er fúið húsið.
aum er trúin, ekkert víf
alveg rúið búsið.
Löbbum fjöllin himin há,
heyrum köll í tófu.
Löbbum fjöllin himin há,
heyrum köll í tófu.
Röbbum öll um alla þá
sem áður tröllin grófu.
Gamall sveppur sæl og hýr
fær svartan lepp á auga
Gamall sveppur sæll og hýr
fær svartan lepp á auga
Gólar seppi, gjammar kýr,
og gráa sleppan Lauga.
Borða Ora baunir öll.
belginn þor'að fylla.
Borða Ora baunir öll.
belginn þor'að fylla.
Þeytist gor um víðan völl,
verkast morið illa.
Fer ég ekki á árshátíð
utan hlekkir leysist.
Fer ég ekki á árshátíð
utan hlekkir leysist.
Tímann blekki tár-þátíð,
á teitis dekki geysist.
Tímavélar taka völd,
tæmist selskapsstundin.
Tímavélar taka völd,
tæmist selskapsstundin.
Verður heljar vistin köld
víða dvelur lundin..
Djöfull fátt um daginn veist
dauðann mátt þú bóka.
Djöfull fátt um daginn veist
dauðann mátt þú bóka.
Bragarháttinn heldur geist,
fékkst hent í átt að Flóka.
Flaskan bláa búin er,
best að fá sér nýja.