Eða Vetur konung, hann Kára?
p.s. gaman af svona fjölbreytni í gátum...
Vísbending: Spurt er um dýr úr norrænni goðafræði.
Eftir nánari athugun þá verð ég að gefa rétt svar við þessu hjá þér Skabbi.
Ég hafði úlfin Skoll í huga, en einnig er talað um að Fenrir muni gleypa sólina.
Tvíeggjaður, talinn limur. Örninn verpir tveim eggjum
Tugir nafni svara. Mörgum mönnum var gefið nafnið Örn
Deyðir mýs og fugla fimur. Örninn snæðir bæði mús og fugl
Fyndinn í návíst Ara. ? Örninn er líka kallaður Ari.
Ég ætla að prófa að giska á Örn
mér dettur í hug Brandur
Brandur er sverð - tvíeggjað
Brandur er ekki algengt karlmannsnafn - nokkrir tugir
Brandugla veiðir mýs og er fimur fugl
Brand- Ari = fyndið!!
Þetta er nú alltof létt, en um hvað er þetta?
Gengur hljótt um heimsins byggð.
Hann er ekki blauður.
Sýnir öllum trú og tryggð,
Tilfinninga snauður.
Eða þá óáþreifanlegt fyrirbæri? Skugginn?
Ja sumir vilja persónugera fyrirbærið.
Ekki hafði ég skuggann í huga, og ekki
er fyrirbærið áþreifanlegt.
Tíminn?
Um hvað er spurt?
Rófa úr gati gjarnan hékk.
Gagnleg öllum talin
Er úr sporum áfram gekk
alltaf styttist halinn.
Það fyrsta sem mér datt í hug var spottinn í sláttuorfum... varla rétt eða hvað?